„Það hefur greinilega eitthvað klikkað“

Arctic Fish er með eldi í nokkrum fjörðum Vestfjarða.
Arctic Fish er með eldi í nokkrum fjörðum Vestfjarða. mbl.is/Helgi Bjarnason

Mæl­ing­ar í kvía­stæðu Arctic Fish gefa til kynna að um 35% strokulax­anna séu kynþroska, sem er alltof hátt að mati rann­sókn­ar­stjóra Haf­rann­sókna­stofn­un­ar. Ljós­a­stýr­ing­ar­búnaður yfir vetr­ar­tím­ann á að koma í veg fyr­ir að eld­islax­inn verði kynþroska en svo virðist sem eitt­hvað hafi farið úr­skeiðis.

Þess ber að geta að mæl­ing­ar á sam­bæri­legri kvía­stæðu Arn­ar­lax í Bíldu­dal sýndi 0% kynþroska.

Með orku­birgðir til að synda langt

„Það sem að ger­ist þá er að kynþroska fisk­ar leita miklu frek­ar út úr kvínni ef það er gat. Hingað til höf­um við ekki orðið vör við neitt strok frá svona litl­um göt­um eins og þetta. En ef þú ert með fisk sem er kynþroska þá fer hann greini­lega út. Hann er með orku­birgðir til að synda langt og gera ein­hvern óskunda. Það er hið versta mál,“ seg­ir Ragn­ar Jó­hanns­son rann­sókn­ar­stjóri við mbl.is.

„[Eld­islax­arn­ir] munu taka þátt, sér­stak­lega hrygn­urn­ar, í hrygn­ingu í haust, það er, þær sem hafa náð því kynþroska­stigi að geta það.

„Ef það verður of mikið af eld­is­fisk­um, sem er að bland­ast inn og það mynd­ast þrýst­ing­ur af þess­um út­lendu genum frá Nor­egi í ís­lensku stofn­ana, þá get­ur það haft nei­kvæð áhrif á hæfni stofn­anna í ánum. Ef hæfni dvín­ar þá minnk­ar viðkoma lax­ins. Það gæti komið fram sér­stak­lega í slæmu ár­ferði þá býður stofn­inn skaða af.“

Eitt­hvað klikkað

Sam­kvæmt áhættumati og rekstr­ar­leyf­um er fyr­ir­tækj­um sem stunda fisk­eldi gert að vera með stöðugt ljós yfir sjókví­un­um yfir vetr­ar­tím­ann til að koma í veg fyr­ir að eld­islax­inn verði kynþroska.

„Það sem það ger­ir er það að fisk­ur­inn rugl­ast í tímarím­inu og ákveður að verða ekki kynþroska strax þar sem hann hef­ur ekki upp­lifað vet­ur. Þar af leiðandi þá á hann að vera ókynþroska þegar að hon­um er slátrað. En það hef­ur greini­lega eitt­hvað klikkað þarna því um 35% af fisk­un­um eru kynþroska. Sem er alltof hátt.“

Tel­ur Ragn­ar að ef rétt hefði verið staðið að mál­um, og eld­islax­arn­ir í sjókvía­stæðu Arctic Fish hefði ekki orðið kynþroska, væri málið tölu­vert auðveld­ara viður­eign­ar.

„Þá hefðu lík­lega mjög fáir fisk­ar strokið og þeir hefðu ekki haft neina ástæðu til þess að fara upp í ár.“

20 þúsund strokulax­ar 2018

Ragn­ar bend­ir á að árið 2018 hafi um 20 þúsund eld­islax­ar strokið úr síðbúnu stroki en ein­ung­is 10 af þeim leitað upp í ár á því ári sem þeir struku og svo 5 árið eft­ir. Núna séu strokulax­arn­ir aft­ur á móti tals­vert færri, eða í kring­um 3.500.

„Síðan kem­ur þessi spreng­ing núna. Þetta er lík­ast til ástæðan, þessi kynþroski sem átti ekki að vera.“

Hann seg­ir Haf­rann­sókna­stofn­un, í sam­vinnu við MAST, nú stefna á að gera út­tekt í eldisk­ví­um á öll­um eld­is­svæðum til að kanna hlut­fall kynþroska eld­islaxa.

„Kryfja úr­tak laxa og skoða hvernig staðan er á full­vaxta fiski fyr­ir slátrun, bæði fyr­ir aust­an og vest­an. Ef kynþroski er mjög lág­ur alls staðar ann­ars staðar myndi það benda til að ónóg ljós­a­stýr­ing­in sé ástæðan. Ef við met­um það svo að við get­um átt von á at­b­urðum sem þess­um í framtíðinni þá þurf­um við að breyta áhættumati.“

mbl.is