Óvæntur snigill frá N-Ameríku í Breiðafirði

Tveir sniglar af tegundinni Melanochlamys diomedea. Ekki er vitað til …
Tveir sniglar af tegundinni Melanochlamys diomedea. Ekki er vitað til þess að tegundin hafi áður sést á Norður-Atlantshafi. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun

Ný teg­und sæsnigils fannst í Breiðafirði. Um er að ræða Melanochla­mys di­omedea og hef­ur teg­und­in yf­ir­leitt verið við vest­ur­strönd Norður-Am­er­íku, allt frá Alaska til Kalíforn­íu. Óskar Haf­rann­sókna­stofn­un nú eft­ir því að al­menn­ing­ur láti vita ef eggja­sekk­ir eða dýr sjást.

Sagt er frá upp­götv­un­inni á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, en þar seg­ir að heim­ild­ir hafa ekki fund­ist um fund­arstaði í Norður Atlants­hafi. Þá er ekki vitað hvernig þessi teg­und sæsnigils hef­ur borist í inn­an­verðan Breiðafjörð né hvort hún finnst víðar við Ísland.

Snigillinn eins og hann lítur út nýkominn úr sandinum.
Snig­ill­inn eins og hann lít­ur út ný­kom­inn úr sand­in­um. Ljós­mynd/​Haf­rann­sókna­stofn­un

Vart við eggja­sekki

Svan­hild­ur Eg­ils­dótt­ir, starfsmaður Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, hef­ur reglu­lega heim­sótt sömu fjör­una við Breiðafjörð þar sem er mikið fugla­líf og hægt er að ganga um leir­urn­ar þegar lág­sjávað er.

„Fyr­ir um tveim­ur árum tók Svan­hild­ur eft­ir ílöng­um hlaup­kennd­um eggja­sekkj­um á leir­un­um. Eggja­sekk­irn­ir eru um 3 cm á lengd og 1 cm á breidd og inn­an í þeim er þráðlaga eggja­spírall. Eggja­sekk­irn­ir fest­ast við und­ir­lagið með þráðum sem liggja ofan í sand­in­um. Til eru mynd­ir af eggja­sekkj­un­um frá júní 2022 og des­em­ber sama ár sem og frá því í sum­ar,“ seg­ir á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar.

Eft­ir að hafa spurst fyr­ir meðal líf­fræðinga var ákveðið að safna sýn­um og bera und­ir sér­fræðing í flokk­un­ar­fræði sjáv­ar­hrygg­leys­ingja á Haf­rann­sókna­stofn­un, Laure de Montety. Benti at­hug­un á eggja­sekkj­un­um til þess að þetta gæti verið eggja­sekk­ir sæsnigils af ætt­bálk­in­um Cephala­spidea. „Ein teg­und þessa ætt­bálks, Ham­inella solitaria, hef­ur verið að finn­ast á nýj­um stöðum síðastliðin ár. Teg­und­in fannst fyrst í Evr­ópu sum­arið 2016 við strend­ur Þýska­lands og síðar í Dan­mörku 2020. Áður var hún þekkt í vest­an­verðu Atlants­hafi og Græn­höfðaeyj­um.“

Eggjasekkir sniglanna Melanochlamys diomedea.
Eggja­sekk­ir snigl­anna Melanochla­mys di­omedea. Ljós­mynd/​Haf­rann­sókna­stofn­un
Tveir sniglar að grafa sig í sandinn.
Tveir snigl­ar að grafa sig í sand­inn. Ljós­mynd/​Haf­rann­sókna­stofn­un

Upp­lýst við krufn­ingu

Tek­in var ákvörðun um að hefja leit að eig­anda eggj­anna og var nokkr­um snigl­um safnað og þeir myndaðir. Fund­ust snigl­ar að mak­ast sem og snigl­ar fast­ir við eggja­sekki.

Fram kem­ur að þess­ir snigl­ar hafa „þró­ast þannig að mjög viðkvæm skel­in er inn­an í dýr­inu, bak­lægt á aft­ur­enda dýrs­ins. Snigl­arn­ir eru dökk­brún­ir að lit að há­marki um 2 cm að lengd, en drag­ast sam­an við trufl­un. Þeir eru fljót­ir að grafa sig niður í setið og hverfa verði þeir hreyf­ing­ar var­ir.“

Var snig­ill kruf­inn á rann­sókna­stofu og við það kom í ljós að ekki var um teg­und­ina Ham­inella solitaria að ræða held­ur Melanochla­mys di­omedea. Eng­ar heim­ild­ir virðast vera um að þessi sní­g­ill hafi áður sést á Norðu-Atlants­hafi.

Mynd af sniglinum tekin á rannsóknastofu.
Mynd af snigl­in­um tek­in á rann­sókna­stofu. Ljós­mynd/​Haf­rann­sókna­stofn­un
Skeljar sæsnigilsins séð ofan á skelina vinstra megin en undir …
Skelj­ar sæsnigils­ins séð ofan á skel­ina vinstra meg­in en und­ir hana hægra meg­in. Ljós­mynd/​Haf­rann­sókna­stofn­un
mbl.is