Meirihluti segist vilja banna eldi í opnum kvíum

Sjókvíaeldið á undir högg að sækja í skoðanakönnunum.Meirihluti í könnun …
Sjókvíaeldið á undir högg að sækja í skoðanakönnunum.Meirihluti í könnun Gallup segist vilja banna eldi í opnum kvíum. mbl.is/Helgi Bjarnason

Af­ger­andi andstaða gegn sjókvía­eldi er meðal ís­lensks al­menn­ings ef marka má niður­stöður skoðana­könn­un­ar sem Gallup hef­ur gert fyr­ir Vernd­ar­sjóð villtra laxa­stofna (NASF). Þar segj­ast 75,8% af þeim 682 sem svöruðu telja villta laxa­stofn­in­um stafi frek­ar eða mjög mik­il hætta af eldi í opn­um sjókví­um og 57,5% telja að banna ætti lax­eldi í opn­um sjókví­um.

Kjós­end­ur VG vildu lang­flest­ir banna þessa starf­semi og sögðust 83% þeirra vilja það og 79% kjós­enda Pírata. Þá vilja 38% kjós­enda Sjálf­stæðis­flokks­ins, 41% kjós­enda Fram­sókn­ar, 68% kjós­enda Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, 59% kjós­enda Viðreisn­ar, 58% kjós­enda Flokks fólks­ins, 40% kjós­enda Miðflokks­ins og 50% kjós­enda Sósí­al­ista­flokks­ins ban­an sjókvía­eldi í opn­um kví­um.

Lands­sam­band veiðifé­laga, Vernd­ar­sjóður villtra laxa­stofna (NASF), Icelandic Wild­li­fe Fund, Land­vernd um­hverf­is­vernd­ar­sam­tök og VÁ - Fé­lag um vernd fjarðar, boðað til sam­stöðufund­ar og mót­mæla á Aust­ur­velli, þann 7. októ­ber til að krefjast þess að stjórn­völd stöðvi sjókvía­eldi.

Flest­ir nei­kvæði gagn­vart sjókvía­eldi

Þá svöruðu 790 spurn­ingu um hvernig þeir líta á grein­ina og sögðust 63,5% þeirra að þeir væru nei­kvæðir gagn­vart sjókvía­eldi en ein­ung­is 14% sögðust já­kvæð gagn­vart slíkri starf­semi.

Meðal svara þeirra 414 sem lýstu ástæðu þess að þeir séu nei­kvæð gagn­vart eld­inu bar hæst á góma hætta á blönd­un við villta lax­inn og segja 40% svar­enda það ástæðuna sem er tölu­verð fjölg­un í þess­um hópi frá í fe­brú­ar þegar 24,2% sögðu það sama. Mik­il umræða hef­ur verið í sam­fé­lag­inu í kjöl­far þess að tölu­verður fjöldi frjórra laxa sluppu úr sjókví í Pat­reks­firði í ág­úst.

Alls segj­ast 38,5% líta sjókvía­eldi nei­kvæðum aug­um vegna hættu á að lax sleppi. 23,3% vegna meng­un­ar  og 13,4% vegna um­hverf­isáhrifa.

Lang­flest­ir sem sögðust já­kvæðir gagn­vart sjókvía­eldi sögðu það vegna þeirra at­vinnu­tæki­færa sem fylgja grein­inni eða 72,5% þeirra.

Mesta ánægj­an í Norðvest­ur

Svar­end­ur í Norðvest­ur­kjör­dæmi eru ánægðast­ir með sjókvía­eldið og sögðust 27% þeirra vera mjög eða frek­ar já­kvæðir gagn­vart lax­eldi í opn­um sjókví­um. Á meðan minnsta já­kvæðnin var meðal þeirra í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður, en þar sögðu aðeins 7% það sama.

Mesta hlut­fallið sem sagðist nei­kvætt gagn­vart sjókvía­eld­inu er að finna í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður þar sem 73% sögðust frek­ar eða mjög nei­væð gagn­vart sjókví­eldi í opn­um kví­um. Minnsta hlut­fallið var hins veg­ar í Suður­kjör­dæmi þar sem 52% sögðust nei­kvæð gagn­vart þess­ari starf­semi.

mbl.is