Matvælaráðuneytið hefur hafið kynningu á framtíð rekstrarumhverfis sjókvíaeldis við Ísland. Framleiðendur, sveitarfélög, stofnanir og félagasamtök voru boðuð til kynningarfundar síðastliðinn föstudag. Helstu markmið stefnumótunar til 2040 og aðgerðir til 2028 voru kynntar. Aðgerðaáætlun verður birt í samráðsgátt stjórnvalda á morgun.
Stefnt er að því að gjaldtaka af sjókvíaeldi verði sanngjörn, gegnsæ og einföld og skili tekjum til samfélagsins án þess þó að hamla fjárfestingum í greininni. Tryggja á fjármögnun lögbundinna verkefna stjórnsýslu við rannsóknir og eftirlit og innleiða hagræna hvata með tilliti til þróunar framleiðsluferla sem stuðla eiga að bættri umgengni við umhverfið og aukinni dýravelferð.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.