Bjarni Sæmundsson í rekstur í næstu viku

Rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson verð fyrir skemmdum þegar það strandaði við …
Rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson verð fyrir skemmdum þegar það strandaði við Tálknafjörð. mbl.is/sisi

Viðgerðir á rann­sókna­skip­inu Bjarna Sæ­munds­syni ganga vel og er gert ráð fyr­ir að skipið verði komið aft­ur í rekst­ur í næstu viku. Bjarni Sæ­munds­son strandaði við Tálkna­fjörð 21. sept­em­ber.

Í til­kynn­ingu á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar kem­ur fram að skipið hafi kom­ist í slipp 25. sept­em­ber og að unnið sé að viðgerðum og að út­veg­un vara­hluta er lokið. Sá hlut­ur skrokks­ins sem skemmd­ist var skor­inn og verður komið fyr­ir þrem­ur plöt­um á svæðið, en amk. fyrstu plöt­unni hef­ur verið komið fyr­ir.

„Gert er ráð fyr­ir að skipið verði komið aft­ur í rekst­ur í næstu viku. Þá halda verk­efni árs­ins áfram og þau kláruð sam­kvæmt settri rann­sókna­áætl­un. Haf­rann­sókna­stofn­un var tryggð fyr­ir þessu tjóni,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Skera þurfti byrt skemmdina á skipsskrokknum.
Skera þurfti byrt skemmd­ina á skips­skrokkn­um. Ljós­mynd/​Haf­rann­sókna­stofn­un

Þakka viðbragðsaðilum

Þá þakk­ar Haf­rann­sókna­stofn­un áhöfn Bjarna Sæ­munds­son­ar og rann­sókn­ar­fólki fyr­ir „fum­laus og fag­leg viðbrögð og vinnu­brögð í þeim aðstæðum sem sköpuðust. Marg­ir komu að því að aðstoða fólkið okk­ar og bjarga skip­inu af strandstað. Við erum afar þakk­lát öll­um þeim viðbragðsaðilun­um sem tóku þátt í björg­un­inni og að eng­in slys urðu á fólki.“

Þá þakk­ar skip­stjóri Bjarna Sæ­munds­son­ar, áhöfn skips­ins og rann­sókn­ar­fólk stofn­un­ar­inn­ar sér­stak­lega þeim fjölda fólks sem veittu aðstoð við strand skips­ins. Er þökk­um beint til aðgerðastjórn­ar Land­helg­is­gæsl­unn­ar, skip­stjór­um og áhöfn­um björg­un­ar­skip­anna Varðar og Tálkna, skip­stjór­um og áhöfn­um þjón­ustu­skip­anna Fosna­fjord og Fosna­kongen, hafn­ar­stjóra Tálkna­fjarðar, starfs­fólki sveita­fé­lags Tálkna­fjarðar og Rauða kross­in­um í Vest­ur-Barðastrand­ar­sýslu.

Búið er að koma fyrir fyrstu plötunni af þremur.
Búið er að koma fyr­ir fyrstu plöt­unni af þrem­ur. Ljós­mynd/​Haf­rann­sókna­stofn­un
mbl.is