60% andvíg fiskeldi í sjókvíum

Þau sem búa á Vesturlandi og á Vestfjörðum eru hlynntari …
Þau sem búa á Vesturlandi og á Vestfjörðum eru hlynntari fiskeldi í sjókvíum en íbúar annarra landshluta. mbl.is/Þorgeir Baldursson

60% þátt­tak­enda sem tóku af­stöðu í nýrri skoðana­könn­un Pró­sents eru and­víg fisk­eldi í sjókví­um. 22% eru hvorki hlynnt né and­víg og 18% eru hlynnt.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu en könn­un­in var gerð 14. til 28. októ­ber.

Ein­stak­ling­ar á aldr­in­um 18 til 24 ára eru hlynnt­ari fisk­eldi í sjókví­um en aðrir ald­urs­hóp­ar.

Hlynnt­ari á Vest­fjörðum

Þau sem búa á Vest­ur­landi og á Vest­fjörðum eru hlynnt­ari fisk­eldi í sjókví­um en íbú­ar annarra lands­hluta og eru 42% þeirra hlynnt.

Aft­ur á móti eru 16% íbúa höfuðborg­ar­svæðis­ins hlynnt fisk­eldi og 12% íbúa á Norður­landi, að því er kem­ur fram í til­kynn­ing­unni.

2.700 manns voru í úr­taki vegna könn­un­ar­inn­ar og var svar­hlut­fallið 52%.

Niður­stöðurn­ar ríma vel við niður­stöður könn­un­ar Gallup fyr­ir Vernd­ar­sjóð villtra laxa­stofna (NASF) sem birt­ar voru fyrr í mánuðinum, en þar sagðist meiri­hut­inn vilja banna eldi í opn­um sjókví­um.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina