Umdeild hækkun fiskeldisgjaldsins

Til stendur að hækka gjöld á sjókvíaeldi hér á landi.
Til stendur að hækka gjöld á sjókvíaeldi hér á landi. Ljósmynd/Laxar

Áform stjórn­valda um hækk­un gjalds á fisk­eldi, sem boðuð eru í frum­varpi til breyt­inga á ýms­um lög­um vegna fjár­laga 2024, mæta harðri and­stöðu Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, SFS, sem segja þau bæði ótíma­bær og úr hófi.

Við ann­an tón kveður hjá Land­vernd sem styður áformin heils­hug­ar. Þetta kem­ur fram í um­sögn­um sem fram­an­greind sam­tök hafa sent Alþingi um frum­varpið sem kallað er bandorm­ur í dag­legu tali.

Breyt­ing sú sem lögð er til á fisk­eld­is­gjaldi kveður á um hækk­un þess úr 3,5% í 5%, en það leggst á and­virði eld­islax sem al­inn er í sjókví­um og slátrað, þegar verð hans er 4,8 evr­ur á kílóið eða hærra.

Nán­ar er fjallað um málið í Morg­un­blaðinu.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: