Villtir laxar sterkari en eldislax

Villtur norskur eldislax sem sloppið hefur úr kvíum hefur gengið …
Villtur norskur eldislax sem sloppið hefur úr kvíum hefur gengið upp í fjölda íslenskra laxveiðiáa á undanförnum vikum. mbl.is/Guðlaugur J. Albertsson

„Við þurf­um að fram­leiða meiri mat og það hef­ur um­hverf­isáhrif. T.d. með því að fram­leiða lax með fisk­eldi í sjókví­um. Í okk­ar til­viki erum við að reyna að ala verðmæta teg­und eins og lax en það hef­ur gengið upp og niður í gegn­um tíðina. Það var er ekki fyrr en fyr­ir rúm­um ára­tug að hjól­in fóru að snú­ast. Fisk­eldi hef­ur um­hverf­isáhrif en flest­ir reyna að draga úr þeim,” seg­ir Ólaf­ur Sig­ur­geirs­son, lektor í fisk­eldi við Há­skól­ann á Hól­um.

Vax­andi at­vinnu­grein

„Íslend­ing­ar virt­ust ekki hafa áhuga á því að fjár­festa í sjókvía­eldi. Norðmenn hafa rúm­lega 40 ára reynslu og kunna að gera þetta. Þeir höfðu áhuga á því að fjár­festa hér á landi en lax­eldi er vax­andi at­vinnu­grein. Vilja Íslend­ing­ar fjár­festa í út­lönd­um?“ spyr Ólaf­ur. „Eru líf­eyr­is­sjóðirn­ir ekki að gera það? Ætlum við að banna er­lenda fjár­fest­ingu á Íslandi?“

Nátt­úru­vernd­arsinn­ar hafa varað við erfðablönd­un ís­lenskra og norskra laxa, einkum eft­ir slyslaslepp­ingu úr kví í Pat­reks­firði. „Það ger­ist af ein­hverj­um klaufa­skap eða hand­vömm. Þar var mjög hátt hlut­fall af löx­um þar kynþroska. Það á að vera hægt að koma í veg fyr­ir það með ljós­a­stýr­ingu. Þetta er tjón hjá fyr­ir­tæk­inu því að kynþroska lax er ann­ars flokks eða ónýt vara. Það er eðli kynþroska laxa að ganga upp í ár, sem hann hef­ur verið að gera. Það má bú­ast við að hluti þess­ara fiska taki þátt í hrygn­ingu með villt­um löx­um, sér­stak­lega hrygn­urn­ar. Rann­sókn­ir sýna að hæng­arn­ir eru óvirk­ir eða lé­leg­ir þátt­tak­end­ur í hrygn­ingn­unni og verða und­ir í sam­keppn­inni við nátt­úru­lega laxa­stofna.“

Árnar nái vopn­um sín­um

Lektor­inn seg­ir að hæfni eld­islaxa til að lifa af í nátt­úr­unni eft­ir kyn­bæt­ur sé veru­lega tak­mörkuð. „Ég trúi að nátt­úru­valið muni henda þeim út. Það er órök­rétt að dýr með skerta hæfni taki yfir vist­kerfi hjá sömu teg­und sem hef­ur aðlag­ast aðstæðum í þúsund ár eða leng­ur.“

Nán­ari um­fjöll­un er að finna í Morg­un­blaðinu í dag

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: