Ótvírætt að fiskeldinu hafi fylgt bætt lífsgæði

Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar kveðst ekki vilja hugsa til …
Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar kveðst ekki vilja hugsa til þess hvernig ástandið væri á sunnanverðum Vestfjörðum án fiskeldisins.

Mik­ill viðsnún­ing­ur hef­ur orðið í byggðum á sunn­an­verðum Vest­fjörðum með til­komu fisk­eld­is­ins sem nú er burðarás í at­vinnu­lífi svæðis­ins. Þór­dís Sif Sig­urðardótt­ir bæj­ar­stjóri Vest­ur­byggðar seg­ir í síðasta blaði 200 mílna meiri­hluta fjöl­skyldna í sveit­ar­fé­lag­inu eiga hags­muni sem tengj­ast fisk­eld­inu og jafn­vel byggðin öll ef litið er til óbeinna áhrifa. Það standi þó ekki í vegi fyr­ir að skýr­ar regl­ur verði sett­ar um starf­sem­ina.

„Eitt er að horfa á beinu störf­in, en þau áhrif sem fisk­eldi hef­ur haft á fjölda óbeinna starfa og áhrif þess á rekstr­ar­grund­völl annarra fyr­ir­tækja, versl­un­ar og þjón­ustu er annað. Fjöldi fólks á sunn­an­verðum Vest­fjörðum á lífsviður­væri sitt und­ir at­vinnu­grein­inni og at­vinnu­grein­in hef­ur óbeint orðið til þess að lífs­gæði hér hafa auk­ist,“ seg­ir Þór­dís Sif.

Hún bend­ir á að mik­il fólks­fjölg­un hafi átt sér stað í byggðakjörn­um sveit­ar­fé­lags­ins á und­an­förn­um fimm árum, frá því að rekst­ur fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­anna hófst af al­vöru. „Frá 1983 til um það bil 2010 var mik­il fólks­fækk­un og íbú­ar upp­lifðu sig svo­lítið fasta, það var erfitt að stíga út úr ástand­inu því það var lítið um at­vinnu og fast­eigna­verð mjög lágt.“

„Það eru dæmi um að fast­eigna­mat sé búið að hækka um 400% frá ár­inu 2011.“

Fiskeldið hefur haft jákvæð áhrif á atvinnutækifærin á sunnanverðum Vestfjörðum.
Fisk­eldið hef­ur haft já­kvæð áhrif á at­vinnu­tæki­fær­in á sunn­an­verðum Vest­fjörðum. Ljós­mynd/​Icelandic Salmon

Erfið umræða

Þór­dís Sif seg­ir umræðuna sem nú er uppi í ís­lensku sam­fé­lagi í tengsl­um við strokulaxa úr Pat­reks­firði mjög erfiða. „Það eru mik­il mót­mæli og grein­in mæt­ir mik­illi and­stöðu. Íbúar Vest­ur­byggðar eru ekki endi­lega af­ger­andi með eða á móti fisk­eldi en sjá hve já­kvæð áhrif það hef­ur haft á sam­fé­lagið hér fyr­ir vest­an. Sunn­an­verðir Vest­f­irðir væru ekki það sem þeir eru í dag ef ekki væri fyr­ir fisk­eldið, mig lang­ar ekki einu sinni að hugsa til þess hvert ástandið væri.“

Á sama tíma ótt­ast íbú­ar Vest­ur­byggðar ekki að sett séu þröng skil­yrði hvað varðar um­hverf­isþætti og fisk­eldið. „Þetta skipt­ir okk­ur einnig miklu máli. Við vilj­um að á svæðinu séu rann­sókn­ar- og eft­ir­lits­störf því það er mik­il­vægt fyr­ir um­hverfið að slíkt sé unnið í nánd við grein­ina. Við erum að stofna rann­sókna- og þró­un­ar­set­ur fisk­eld­is fyr­ir sunn­an­verða Vest­f­irði hér á Pat­reks­firði. Mark­miðið er að skapa vinnuaðstæður og sam­fé­lag fyr­ir sér­fræðinga í eft­ir­liti og rann­sókn­um er tengj­ast fisk­eldi, þar sem gerðar eru rann­sókn­ir á um­hverf­isþátt­um, líf­ríki sjáv­ar sem og fé­lags­leg­ar rann­sókn­ir.“

Ítar­legt viðtal við Þór­dísi Sif má lesa í síðasta blaði 200 mílna.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: