Ýta á MAST og vilja niðurstöðurnar fyrr

Seyðisfjörður.
Seyðisfjörður. mbl.is/Sigurður Bogi

Sveit­ar­stjórn Múlaþings hef­ur samþykkt að fela sveit­ar­stjóra að fara þess á leit við Mat­væla­stofn­un að niðurstaða fá­ist í af­greiðslu rekstr­ar­leyf­is vegna fyr­ir­hugaðs lax­eld­is í Seyðis­firði.

„Okk­ur fannst eðli­legt að óska eft­ir upp­lýs­ing­um frá MAST og reyna þá að ýta við því að um­sókn­in fái af­greiðslu, al­veg sama hvort það sé já eða nei,“ seg­ir Jón­ína Brynj­ólfs­dótt­ir, for­seti sveit­ar­stjórn­ar Múlaþings.

Aðspurð seg­ist hún ekki vita hvort Mat­væla­stofn­un bregðist við beiðni þeirra. „Ég væri af­skap­lega þakk­lát ef við gæt­um alla vega fengið upp­lýs­ing­ar um hvernig ná­kvæm­ir ferl­ar eru hjá Mat­væla­stofn­un og hvað er áætlað að það taki lang­an tíma að af­greiða slíkt.“

Helgi Hlyn­ur Ásgríms­son, sem sit­ur í sveit­ar­stjórn Múlaþings, greiddi at­kvæði gegn til­lög­unni ásamt tveim­ur öðrum. „Það skýt­ur mjög skökku við að allt í einu núna finn­ist þeim þau geta haft ein­hverja aðkomu að þessu,“ seg­ir hann. Hingað til hafi svar meiri­hlut­ans verið að skipu­lags­valdið sé ekki hjá hon­um. 

Lesa má meira um málið í Morg­un­blaðinu í dag. 

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: