Grínistinn Ari Eldjárn kom fram á Íslandskynningu í Boston í síðustu viku. Ari gerði frí úr ferðinni en hann og kærasta hans, Tinna Brá Baldvinsdóttir, eigandi hönnunarverslunarinnar Hríms, var með í för ásamt börnum þeirra.
Ari og Tinna byrjuðu að rugla saman reitum fyrr á árinu og fóru nú með nýja samsetta fjölskyldu í ferð til Boston. Þetta er ekki fyrsta utanlandsferð þeirra saman en Ari og Tinna skelltu sér saman til Frakklands í sumar og nutu lífsins.
Ari skemmti gestum við góðar undirtektir á Íslandskynningu í Boston. Kynningin var í samstarfi við Íslandsstofu, Bláa lónið, Icelandia, 66°Norður og Special Tours. Kynningin var umfangsmikil og voru listamenn á svæðinu eins og íslenska hljómsveitin Kaleo.