„Þeir eru étnir lifandi“

Á myndinni má sjá laxana sem smitaðir eru af lús.
Á myndinni má sjá laxana sem smitaðir eru af lús. Ljósmynd/Veiga Grétarsdóttir

Það var uggvæn­leg sjón sem blasti við Veigu Grét­ars­dótt­ur kaj­akræðara þegar hún flaug dróna sín­um yfir sjókví­ar Arctic Fish í Tálknafirði í síðastliðinni viku.

Veigu, sem ætlað hafði sér að festa það á mynd þegar fyr­ir­tækið dældi laxi, brá í brún þegar mynda­vél­in sýndi þúsund­ir illa far­inna lús- og bakt­eríuét­inna laxa í sjókví­un­um. 

„Roðlaus­ir og lúsug­ir haus­ar úti um allt“

„Þarna voru roðlaus­ir og lúsug­ir haus­ar úti um allt,“ seg­ir Veiga. „Ég ætlaði ekki að trúa þessu, þetta var öm­ur­leg sjón. Þeir eru étn­ir lif­andi, ég get ekki ímyndað mér að það sé gott.“

Veigu blöskr­ar meðferðin á lax­in­um, en hún seg­ir að í sjókvínni hafi fleiri hundruð þúsunda fiska þurft að líða þján­ing­ar. 

„Þetta er bara dýr­aníð af verstu gerð,“ seg­ir Veiga sem seg­ir ekki vel­ferð allra dýra vera lagða að jöfnu.

„Ég held að það yrði allt brjálað í sam­fé­lag­inu ef það sæj­ust mynd­ir úr fjár­hús­inu þar sem sauðkind­in væri étin lif­andi. Þetta er auðvitað at­vinna og allt það, en það er ekk­ert hægt að gera allt í nafni at­vinnu.“ 

Veiga sá laxana er hún flaug dróna sínum í Tálknafirði …
Veiga sá lax­ana er hún flaug dróna sín­um í Tálknafirði á dög­un­um. Ljós­mynd/​Veiga Grét­ars­dótt­ir

Laxal­ús­in kemst ekki í lokuð kerfi

Spurð hvort til séu leiðir við sjókvía­eldi sem stuðli að bættri vel­ferð dýr­anna vís­ar Veiga til lokaðra kerfa, sem meðal ann­ars eru nýtt í Nor­egi.

„Þetta eru tank­ar sem fisk­ur­inn er al­inn inni í. Og eft­ir því sem ég best veit, eft­ir upp­lýs­ing­um frá Nor­egi, þá kemst laxal­ús­in ekki inn í þessa tanka,“ seg­ir Veiga sem seg­ir mik­il­vægt að stemma stigu við því að lýs taki að ber­ast á milli lax­anna. 

„Lús­in kem­ur úr nátt­úr­unni og þegar það er svona mikið magn af fiski á ein­um stað nær hún að fjölga sér og verða að far­aldri. Það eru ekki nema þrjár eða fjór­ar vik­ur síðan þeir voru að eitra nán­ast all­ar kví­arn­ar með því að hella lúsa­eitri en það tókst ekki að bjarga fisk­un­um,“ seg­ir Veiga. 

Eldislaxinn sem um ræðir er framleiddur af fyrirtækinu Arctic Fish.
Eld­islax­inn sem um ræðir er fram­leidd­ur af fyr­ir­tæk­inu Arctic Fish. Ljós­mynd/​Veiga Grét­ars­dótt­ir

Veiga seg­ir tæki­færi geta fal­ist í lokuðum kerf­um og að þau séu jafn­framt betri fyr­ir um­hverfið.

„Með þeim get­ur þú hirt upp skít­inn eft­ir fisk­inn, þú losn­ar við kop­ar­meng­un­ina í sjón­um og ef þú losn­ar við lús­ina losn­ar þú við lúsa­eitrið líka sem gæti orðið at­vinnu­skap­andi á ann­an hátt ef þeir færu nú að hirða upp líf­ræna úr­gang­inn eft­ir fisk­inn og byggju til líf­ræn­an úr­gang úr hon­um eins og verið er að skoða fyr­ir sunn­an.“

mbl.is