Ánægja með þátt Breka og Þórunnar Sveinsdóttur

Það fékkst eitt og annað í trollið í síðari hluta …
Það fékkst eitt og annað í trollið í síðari hluta leiðangurs á Breka. Breki VE og Þórunn Sveinsdóttir VE tóku þátt í stofnmælingu Hafrannsóknastofnunar í október. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun/Kristín Jóhanna Valsdóttir

Sam­starf áhafna á Breka VE-61 og Þór­unni Sveins­dótt­ur VE-401 og starfs­manna Hafranna­ókna­stofn­un­ar gekk vel þegar stofn­mæl­ing botn­fiska fór fram í októ­ber en skip­in sigldu sam­tals um 6.800 sjó­míl­ur. Um er að ræða í þriðja sinn sem Breki tek­ur þátt í svo­kölluðu haustr­alli stofn­un­ar­inn­ar en Þór­unn Sveins­dótt­ir tók þátt í fyrsta sinn, bæði skip­in eru gerð út af Vinnslu­stöðinni í Vest­manna­eyj­um.

„Verk­efn­in henta skip­un­um vel og sam­starfið við Haf­rann­sókna­stofn­un er sér­lega gott. Þar starfar fjöldi fag­fólks á sín­um sviðum sem gef­andi er fyr­ir okk­ur að kynn­ast og mik­il­væg­um vís­inda­störf­um þeirra. Haf­rann­sókn­ir skipta auðvitað þjóðina alla gríðar­miklu máli,“ seg­ir Sverr­ir Har­alds­son, sviðsstjóri botn­fisks­sviðs Vinnslu­stöðvar­inn­ar, í færslu á vef út­gerðar­inn­ar.

Dílamjóri og rækja sem fengust í leiðangrinum.
Dílamjóri og rækja sem feng­ust í leiðangr­in­um. Ljós­mynd/​Haf­rann­sókna­stofn­un/​Arn­ar Björns­son

Rík­is­kaup óskuðu eft­ir til­boðum í leigu á tog­ur­um vegn ahaustr­alls­ins og var í kjöl­farið gengið frá samn­ing­um, út­skýr­ir Sverr­ir. „Vinnslu­stöðin hafði leigt Breka tvisvar sinn­um í djúp­sjáv­arþátt ralls­ins og bauð í ár í verk­efnið í þriðja sinn og fékk. Við buðum að þessu sinni líka í grunnsjáv­arþátt­inn fyr­ir Þór­unn Sveins­dótt­ir og feng­um.“

Haf­rann­sókna­stofn­un hef­ur stundað stofn­mæl­ingu að hausti frá ár­inu 1996 og hef­ur verið til grund­vall­ar ráðgjaf­ar stofn­un­ar­inn­ar um há­arksafla fyr­ir fjölda teg­unda á Íslands­miðum. Sam­hliða stofn­mæl­ing­um eru tek­in ýmis sýni og sjáv­ar­hiti mæld­ur svo eitt­hvað sé nefnt.

Toguðu á yfir 300 stöðvum

Breki lét frá bryggju 28. sept­em­ber og kom til heima­hafn­ar á ný 20. októ­ber en Þór­unn Sveins­dótt­ir hélt í leiðang­ur 2. októ­ber og kom til hafn­ar 24. októ­ber. Magnús Rík­h­arðsson var skip­stjóri á Breka og Óskar Þór Kristjáns­son skip­stjóri á Þór­unni Sveins­dótt­ur.

Fram kem­ur á vef Vinnslu­stöðvar­inn­ar að skipt­ing rann­sókn­ar­svæðis­ins miðast við meg­in­út­breiðslu þorsks, ýsu og gull­karfa á grunn­slóð ann­ars veg­ar og grá­lúðu og djúpkarfa á djúp­slóð hins veg­ar. Djúp­slóðin er á 400 til 1.500 metra dýpi.

Þá togaði Þór­unn  Sveins­dótt­ir á 179 stöðvum á grunn­slóðinni en Breki á 155 stöðvum á djúp­slóð. Haf­rann­sókna­skipið Árni Friðriks­son tók einnig þátt í rall­inu og togaði á 38 stöðvum suðvest­ur og vest­ur af land­inu. Á meðan Þór­unn togaði á 25 til 422 metra dýpi, 174 dýpi að meðaltali, togaði Breki á 150 til 983 metra dýpi, 542 metra dýpi að meðaltali. Dýpsta stöðin í leiðangr­in­um var um 1.300 metr­ar og á slíku dýpi hafa ekki önn­ur skip í ís­lenska flot­an­um en Árni Friðriks­son mögu­leika til að toga.

Freyr Arnaldsson sjávarútvegsfræðingur og gegnt honum er Bylgja Sif Jónsdóttir …
Freyr Arn­alds­son sjáv­ar­út­vegs­fræðing­ur og gegnt hon­um er Bylgja Sif Jóns­dótt­ir líf­fræðing­ur á bleika deg­in­um. Ljós­mynd/​Haf­rann­sókna­stofn­un/​Val­ur Boga­son

„Magnús á Breka er auðvitað reynd­ur“

Klara Björg Jak­obs­dótt­ir fiski­fræðing­ur er verk­efn­is­stjóri haustr­alls­ins og hún var jafn­framt leiðang­urs­stjóri á Árna Friðriks­syni. Val­ur Boga­son sjáv­ar­vist­fræðing­ur var leiðang­urs­stjóri á Þór­unni Sveins­dótt­ur og Hlyn­ur Pét­urs­son líf­fræðing­ur leiðang­urs­stjóri á Breka.

Meðal þess sem skoðað er í haustr­all­inu er einnig plast­meng­un og rusl sem fæst í trollið. „Vökt­un vegna plast­hluta og rusls var sett á dag­skrá ralls­ins á ár­inu 2017 að frum­kvæði Karls Gunn­ars­son­ar líf­fræðings. Bless­un­ar­lega lítið kem­ur upp af rusli og aðskota­hlut­um, helst snæris­bút­ar og brot úr veiðarfær­um. Hins veg­ar get­um við nú  vísað til þess að gögn séu til um þessa hlið um­hverf­is­vökt­un­ar við Ísland,“ seg­ir Klara Björg.

Hún seg­ir haustr­allið hafi heilt yfir tek­ist vel. „Októ­ber er erfiður árs­tími og allra veðra von. Við feng­um bæði gott og slæmt veður, það teld­ist frétt­næmt ef veðrið léki við okk­ur all­an tím­ann!“

Hún seg­ir sam­starfið við skip­stjór­ana á tog­ur­um Vinnslu­stðvar­inn­ar hafa verið far­sælt og gott. „Magnús á Breka er auðvitað reynd­ur og áhuga­sam­ur og ég heyri ekki bet­ur en að Óskar Þór á Þór­unni fái líka ágæt­is­ein­kunn hjá okk­ar fólki sem var þar um borð. Það skipt­ir svo miklu máli að vinna með skip­stjór­um sem leggja sig alla fram um að skila góðu verki. Áhöfn­in öll smit­ast af áhuga yf­ir­manna sinna og ár­ang­ur­inn læt­ur ekki á sér standa þegar all­ir leggj­ast á eitt, áhafn­ir skip­anna og starfs­fólkið okk­ar.“

Óskar Þór Kristjánsson skipstjóri, í brú Þórunnar Sveinsdóttur.
Óskar Þór Kristjáns­son skip­stjóri, í brú Þór­unn­ar Sveins­dótt­ur. Ljós­mynd/Ó​skar Pét­ur Friðriks­son

6.800 míl­ur

Skip­stjór­arn­ir Magnús og Óskar Þór mega ekk­ert upp­lýsa um gang veiða enda eru upp­lýs­ing­arn­ar trúnaðar­mál og Haf­rann­sókna­stofn­un sem ræður för í þeim efn­um. Óskar Þór seg­ir þó það hafa komið hon­um á óvart hve út­breidd ýsan var á miðunum og fannst Magnúsi held­ur meira af karfa á vest­ur­svæðinu en í fyrra.

„Gam­an var að fást við þetta í fyrsta sinn, fá að fara hring­inn í kring­um landið og inn í firði og flóa, inn fyr­ir mörk land­helg­inn­ar og nán­ast upp í fjörugrjót sums staðar. Við sigld­um alls 3.800 sjó­míl­ur í rall­inu og lönduðum fiski í alls 420 kör­um á Ísaf­irði, Dal­vík og í Vest­manna­eyj­um,“ seg­ir Óskar Þór.

„Rallið í ár var að miklu leyti end­ur­tekið efni frá því í fyrra en veðurfarið erfiðara nú en þá. Við tók­um veiðarfær­in um borð í Vest­manna­eyj­um, hóf­um leiðang­ur­inn strax og fór­um vest­ur og norður um. Við sigld­um rétt um 3.000 sjó­míl­ur í leiðangr­in­um, toguðum niður á 500 faðma og lönduðum í Nes­kaupstað og Vest­manna­eyj­um. Sam­starfið við starfs­fólk Haf­rann­sókn­ar­stofn­un­ar var afar gott og hef­ur verið í öll­um verk­efn­um sem ég hef tekið þátt í,“ seg­ir Magnús.

Siglingaleiðir skipanna þriggja í haustrallinu. Rannsóknaskipið Árni Friðriksson á bláu …
Sigl­inga­leiðir skip­anna þriggja í haustr­all­inu. Rann­sókna­skipið Árni Friðriks­son á bláu lín­urn­ar, Breki VE þær gul­brúnu og Þór­unn Sveins­dótt­ir þær hvítu. Kort/​Haf­rann­sókna­stofn­un
Áhöfnin á Breka við færibandaið í síðari hluta haustrallsins.
Áhöfn­in á Breka við færi­bandaið í síðari hluta haustr­alls­ins. Ljós­mynd/​Haf­rann­sókna­stofn­un/​Krist­ín Jó­hanna Vals­dótt­ir
mbl.is