Eitt er að halda dýr á landi en annað neðansjávar. Bóndinn getur lært á hegðun dýra sinna og séð ýmsar vísbendingar um líðan þeirra, annað er upp á teningnum þegar fiskeldi er annars vegar. Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Stjörnu-Oddi hefur frá árinu 2015 þróað mæla sem geta hjálpað vísindamönnum og eldisfyrirtækjum að kortleggja betur líðan og hegðun fiska með því að mæla hjartslátt og umhverfisþætti. Bundnar eru miklar vonir við að slíkar upplýsingar geti minnkað afföll.
„Allt er þetta þróað innan fyrirtækisins og framleitt hér í Garðabænum. Íslenskt hug- og verkvit sem selt er út um allan heim. Minnsti markaðurinn er hér heima,“ segir Dagmar Ýr Ólafsdóttir, sölustjóri dýramæla Stjörnu-Odda, í viðtali í blaði 200 mílna.
Eitt merkilegasta tæki sem nýst hefur við rannsóknir í tengslum við eldi á laxfiskum er hjartamælir félagsins, en fyrsta kynslóð hans kom á markað fyrir áratug og fyrstu merkin seld í fiskeldi í kringum 2015. „Maður græðir mælinn í fiskinn, sækir svo fiskinn aftur til að fá mælinn og hleður síðan niður gögnunum,“ segir Dagmar Ýr.
„Hjartsláttatíðni í fiski hækkar strax um leið og það er eitthvað sem veldur einhvers konar áreiti, þótt það sjáist ekki á fiskinum. Ef það eru til dæmis teknar blóðprufur er hægt að tengja það við streituhormón. Þetta sýnir okkur einfaldlega hvort fiskinum líður vel og hann sé að gera það sem hann á að gera eða hvort eitthvað óeðlilegt er í gangi sem er hægt að tengja síðan við einhverja umhverfisþætti eins og hita, allir mælarnir okkar mæla hitastig,“ útskýrir hún.
„Ef fiskinum líður vel færðu betri afurð og betri afurð skilar betra verði. Það er þekkt að stress við slátrun skilar ekki jafn góðu kjöti og það er það sama við fiskinn,“ segri Dagmar Ýr.
Viðtalið við Dagmar Ýr má lesa hér.