Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) ætla að leggja ríkari áherslu á að velferð eldisdýra verði sett í forgrunn þegar kemur að meðhöndlun gegn laxalús í yfirstandandi stefnumótun stjórnvalda um sjókvíaeldi.
Tilefnið er mikill ágangur laxalúsar á fiskum í sjókvíum Arnarlax og Arctic Fish á Vestfjörðum. Kveðst SFS þykja miður sú staða sem upp er komin, að því er fram kemur í yfirlýsingu samtakanna.
Þar segir að sjónarmið fyrirtækjanna um dýravelferð hafi leitt til ákvörðunar um að farga fiskum í tilteknum kvíum. „Lúsugir fiskar sem borið hafa skaða af ágengu sníkjudýri í of langan tíma eru ekki frýnilegir á að líta og eru ekki seldir á neytendamarkað.“
„Laxalús er hluti af lífríki sjávar og er algengt sníkjudýr á laxfiskum, bæði í villtum laxi og eldislaxi. Bæði Arnarlax og Arctic Fish viðhafa virkt eftirlit með lús í sínum kvíum og dýralæknar á þeirra vegum meta ávallt stöðuna í samráði við Matvælastofnun,“ segir í yfirlýsingunni.
Bent er að þegar aðstæður verða slíkar að að það kalli á meðhöndlun gegn kús sé mikilvægt að hægt sé að grípa hratt og örugglega inn í atburðarrásina. „Það er sameiginlegt verkefni fiskeldisfyrirtækja og yfirvalda að huga að bestu forvörnum til að koma í veg fyrir ágang lúsar og tryggja að til staðar séu skilvirk úrræði til viðbragða ef þörf krefur.“
Vakin er sérstök athygli á að „eldislax, sem seldur er til manneldis á kröfuharða markaði erlendis, er undirstaða afkomu fyrirtækjanna og skapar mikil útflutningsverðmæti fyrir þjóðarbúið. Eðli máls samkvæmt kappkosta eldisfyrirtæki því við að tryggja heilbrigði eldislaxins.“