Telja fengsæl fiskimið í Eyjafirði í húfi

Smábátasjomenn telja mikilvæg fiskimið smábáta í húfi verði eldi leyft …
Smábátasjomenn telja mikilvæg fiskimið smábáta í húfi verði eldi leyft í Eyjafirði. mbl.is/Bjarni Helgason

Til að vernda mik­il­væg fiski­mið smá­báta legg­ur smá­báta­fé­lagið Klett­ur til að öll­um hug­mynd­um um sjókvía­eldi í Eyjaf­irði verði hafnað.

„Í gegn­um tíðina hafa ýms­ir aðilar gert allskon­ar til­raun­ir til eld­is í Eyjaf­irði í skjóli veikra laga og reglna um þenn­an mála­flokk. Eft­ir hef­ur setið gríðarlegt magn af rusli og drasli bæði í sjó og fjör­um sem eng­in virt­ist vera gerður ábyrg­ur fyr­ir,“ seg­ir í um­sögn fé­lags­ins við lagar­eld­is­stefnu Íslands til árs­ins 2040 sem birt hef­ur verið í sam­ráðsgátt stjórn­valda.

„Þess fyr­ir utan hafa ný­leg dæmi sannað að sjókvía­eldi á ekki rétt á sér. Þar er mik­il hætta á um­hverf­is­meng­un svosem varðandi úr­gang frá slíku eldi, slysaslepp­ing­um, laxal­ús og fleiri sjúk­dóm­um sem fylgja fisk­eldi í sjó,“ seg­ir í um­sögn­inni.

Smá­báta­fé­lagið Klett­ur hef­ur varn­arþing frá Sigluf­irði í vestri að Tjör­nesi í austri og bend­ir fé­lagið sért­sak­lega á að „í Eyjaf­irði eru feng­sæl fiski­mið smá­báta sem eru í hættu ef áframeldisk­ví­ar í sjó verða leyfðar. Þá eru marg­ar vin­sæl­ar veiðiár á svæðinu sem eru í hættu ef til slysaslepp­inga kem­ur líkt og oft hef­ur gerst.“

Leggst Klett­ur „al­farið gegn áframeldi að nokkr­um toga í Eyjaf­irði.“

mbl.is