Fjöldi umsagna varða bann við sjókvíaeldi

Margir nýta tækifærið til að gagnrýna hefðbundið sjókvíaeldi í umsögnum …
Margir nýta tækifærið til að gagnrýna hefðbundið sjókvíaeldi í umsögnum sínum. mbl.is/Ágúst Ingi Jónsson

Alls hef­ur borist 81 um­sögn um lagar­eld­is­stefnu stjórn­valda til árs­ins 2040 sem birt hef­ur verið í sam­ráðsgátt stjórn­valda, en frest­ur til að skila inn um­sögn rann út 4. nóv­em­ber. Þrátt fyr­ir að hug­takið lagar­eldi nái til allra eld­is- og rækt­un­ar­greina er ljóst að mál­efni fisk­eld­is er fólki helst í huga og snúa flest­ar um­sagn­irn­ar að þeim hluta lagar­eld­is, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un Morg­un­blaðsins.

Af þeim um­sögn­um sem borist hafa eru 33, eða um 40% allra um­sagna, sam­hljóma yf­ir­lýs­ing­ar frá ein­stak­ling­um sem vilja banna opið sjókvía­eldi við Íslands­strend­ur. Eini mun­ur­inn á þess­um um­sögn­um er nafn þeirra sem und­ir­rita þær. „Sem Íslend­ing­ur sem er annt um nátt­úru lands­ins krefst ég þess að stjórn­völd banni lax­eldi í opn­um sjókví­um. Sjókvía­eldi meng­ar firði okk­ar, eitr­ar líf­ríki sjáv­ar og ógn­ar til­veru ís­lenskra laxa­stofna,“ seg­ir í fyrstu setn­ingu um­sagn­anna.

Auk þess­ara um­sagna eru enn fleiri frá ein­stak­ling­um og sam­tök­um sem leggja til bann við opnu sjókvía­eldi.

Nán­ar er fjallað um um­sagn­irn­ar í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: