Fjöldi vill friðun Eyjafjarðar

Fjöldi umsagna um lagareldisstefnu til ársins 2040 snúa að friðun …
Fjöldi umsagna um lagareldisstefnu til ársins 2040 snúa að friðun Eyjafjarðar. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Tíu um­sagn­ir um nýja lagar­eld­is­stefnu til árs­ins 2040 í sam­ráðsgátt stjórn­valda snú­ast ein­göngu um friðun Eyja­fjarðar frá sjókvía­eldi, að því er fram kem­ur í Morg­un­blaðinu í dag.

Seg­ir í um­sögn sem Er­lend­ur Stein­ar Friðriks­son skrif­ar fyr­ir hönd Fiski­rann­sókna ehf. að fé­lagið sinni rann­sókn­um á ferskvatns­fisk­um og hafi rann­sakað og fylgst með bágri stöðu sjó­bleikju­stofna í Eyjaf­irði. Auk þess hafi fé­lagið staðið fyr­ir rann­sókn­um á urriðastofn­um í Eyjaf­irði sem hafi vaxið nokkuð. Er full­yrt að sjókvía­eldi geti haft nei­kvæð áhrif á urriðastofn­ana og gert út um sjó­bleikju­stofn­ana.

„Til varna stofn­um bleikju og urriða er því farið fram á að allt sjókvía­eldi verði bannað í Eyjaf­irði,“ seg­ir í um­sögn­inni.

Þá skil­ar einnig smá­báta­fé­lagið Klett­ur um­sögn þar sem fé­lagið sem kveðst leggj­ast „al­farið gegn hug­mynd­um um sjókvía­eldi á fiski í Eyjaf­irði“. Þá seg­ir: „…í Eyjaf­irði eru feng­sæl fiski­mið smá­báta sem eru í hættu ef áframeldisk­ví­ar í sjó verða leyfðar. Þá eru marg­ar vin­sæl­ar veiðiár á svæðinu sem eru í hættu ef til slysaslepp­inga kem­ur líkt og oft hef­ur gerst.“

Ásta Fönn Flosa­dótt­ir skrif­ar um­sögn fyr­ir hönd æðarbænda í Eyjaf­irði sem ótt­ast nei­kvæð áhrif sjókvía­eld­is á líf­ríki fjarðar­ins. „Það er óskilj­an­legt að Eyja­fjörður sé ekki friðaður gegn fisk­eldi í sjó. Þessi ófögnuður á ekk­ert er­indi hér.“

Einnig hafa þrjú hvala­skoðun­ar­fé­lög við Eyja­fjörð skilað um­sögn gegn sjókvía­eldi í firðinum sem og rekstr­araðilar Hót­el Natur Ak­ur­eyri.

Fjallað er um um­sagn­irn­ar í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: