Felldu tillögu gegn fiskeldi í Seyðisfirði

Tillögu um að hafna fiskeldi í Seyðisfirði var felld.
Tillögu um að hafna fiskeldi í Seyðisfirði var felld. mbl.is

Jón Hall­dór Guðmunds­son, einn þriggja full­trúa í heima­stjórn Seyðis­fjarðar, lagði á fundi stjórn­ar­inn­ar í síðustu viku fram til­lögu um að stöðva vænt­an­lega upp­bygg­ingu fisk­eld­is í firðinum. Mar­grét Guðjóns­dótt­ir og Jón­ína Brynj­ólfs­dótt­ir felldu til­lög­una.

Þetta kem­ur fram í fund­ar­gerð heima­stjórn­ar­inn­ar sem birt hef­ur verið á vef sveit­ar­fé­lags­ins Múlaþings.

Til­laga Jóns Hall­dórs gekk út á að heima­stjórn­in myndi leggja til við sveit­ar­stjórn Múlaþings að sveit­ar­fé­lagið beiti sér fyr­ir að strandsvæðis­skipu­lag Aust­ur­lands verði fellt úr gildi og gert að nýju. „Á nú­gild­andi strandsvæðis­skipu­lagi, sem staðfest var, er gert ráð fyr­ir um­svifa­miklu fisk­eldi í Seyðis­firði, þrátt fyr­ir marg­ar at­huga­semd­ir, sem sum­ar hverj­ar benda á svo al­var­lega ágalla á skipu­lag­inu hvað fisk­eldi í Seyðis­firði varðar, að skipu­lagið hefði aldrei átt að vera staðfest óbreytt,“ seg­ir í til­lög­unni.

Var í til­lög­unni bent á að í skoðana­könn­un sem Múlaþing lét gera hafi meiri­hluti íbúa Seyðis­fjarðar sagst vera mót­fall­in fisk­eldi í firðinum, en tölu­vert var fjallað um mögu­legt fisk­eldi í Seyðis­firði á síðasta ári.

„Einnig ligg­ur fyr­ir að eft­ir­lit með fisk­eldi á landsvísu trygg­ir ekki að farið sé að regl­um og skil­mál­um fisk­eld­is, varðandi svo­kallaðar slysaslepp­ing­ar og vel­ferð dýra. Að öllu þessu at­huguðu vill Múlaþing að fisk­eldi í Seyðis­firði í Strandsvæðiskipu­lagi Aust­ur­lands verði fellt úr skipu­lag­inu við end­ur­skoðun þess,“ seg­ir að lok­um í til­lög­unni.

Fyrri ákvörðun hafi verið óviðeig­andi

Sem fyrr seg­ir var til­lag­an felld með tveim­ur at­kvæðum gegn einu. Við það lagði Jón Hall­dór fram bók­un þar sem hann seg­ir óheppi­legt og óviðeig­andi að heima­stjórn­in hafi áður samþykkt beiðni til sveit­ar­stjórn­ar um að fela sveit­ar­stjóra að af­greiðsla rekstr­ar­leyf­is­um­sókn­ar vegna fyr­ir­hugaðs lax­eld­is í Seyðis­firði verði sett í for­gang.

„Fyr­ir ligg­ur að um­sókn um lax­eldi í Seyðis­firði er í lög­bundnu ferli og því afar var­huga­vert að beita sér fyr­ir aukn­um máls­hraða eða öðru sem leitt gæti til þess að málið verð af­greitt án þess að gætt sé vel að um­hverf­is­mál­um og regl­um um lax­eldi í sjó,“ seg­ir í bók­un­inni.

Nokkr­ar áhyggj­ur hafa verið af at­vinnu­ástand­inu á Seyðis­firði eft­ir að Síld­ar­vinnls­an til­kynnti að bol­fisk­vinnslu fé­lags­ins á staðnum yrði lokuð 30. nóv­em­ber.

mbl.is