Hvers vegna er þetta jólagjöf ársins að mati ELKO?

Arinbjörn Hauksson, forstöðumaður markaðssviðs Elko.
Arinbjörn Hauksson, forstöðumaður markaðssviðs Elko. Ljósmynd/Aðsend

Snjallsími er jólagjöf ársins í ár að því er fram kemur í árlegri jólakönnun ELKO. Snjallsíminn hefur toppsætið af loftsteikingarpottinum (e. airfryer) sem tvímælalaust var jólagjöf ársins árið 2022, en fellur nú niður í níunda sæti á listanum yfir jólagjafir ársins.

Leikjatölvur í öðru sæti

Á eftir snjallsíma koma leikjatölvur í öðru sæti listans. Í þeim flokki ber einna hæst PlayStation5 leikjatölvuna. Samkvæmt fréttatilkynningu frá Elko má gera ráð fyrir að í ár verði hægt að anna eftirspurn eftir þessari vinsælu leikjatölvu, þremur árum eftir að hún kom fyrst á markað. Þá eru handheldar leikjatölvur að verða vinsælli og koma þær einnig til með að verða vinsæl jólagjöf í ár.

Heyrnatól ofarlega á listanum

„Í þriðja sæti eru svo heyrnartól, en í þeim flokki voru Airpods oftast nefnd eða í 25% tilfella en vegna vinsælda þessara heyrnartóla frá Apple hefur nafn þeirra nánast orðið samnefnari fyrir öll heyrnartól í eyru,“ segir Arinbjörn Hauksson, forstöðumaður markaðssviðs ELKO. Í fjórða sætinu eru svo snjallúr og þar á eftir góð bók, afþreying og upplifun, og loks gjafabréf.

Sex þúsund svöruðu könnun ELKO

„Við sendum jólakönnun ELKO á póstlistann okkar um miðjan október og fengum rúmlega 6.000 svör við könnuninni í ár,“ segir Arinbjörn. Hann segir margt forvitnilegt koma fram í könnuninni, svo sem að 4,5% svarenda verði ekki heima um jólin, 47,6% kaupi tíu eða fleiri jólagjafir, 23,6% 18 ára og eldri fái í skóinn á aðfangadag og að rúmlega helmingur haldi í hefðir og gæði sér á möndlugraut um jólin. „Og þegar svo margir svara þá teljum við óhætt að yfirfæra þessi hlutföll á landsmenn alla.“

Í könnun Elko kemur í ljós að um 47,6% kaupi …
Í könnun Elko kemur í ljós að um 47,6% kaupi tíu eða fleiri jólagjafir. Ljósmynd/Aðsend

Eldhústæki einnig vinsæl jólagjöf

Eldhústæki hafa alltaf verið vinsæl jólagjöf og væri flokkurinn tekinn saman þá myndi hann verma þriðja sætið á listanum yfir jólagjöf ársins 2023. Úr þeim flokki eru það einna helst, kaffivélar, hrærivélar og pizzaofnar sem gera má ráð fyrir að rati undir jólatré landsmanna í ár ásamt því að loftsteikingarpottar halda áfram að vera vinsælir en þar má gera ráð fyrir að notendur vilji hugsanlega stækka við sig og fara í stærri, eða jafnvel tvöfalda loftsteikingarpotta.

Spurt var um unaðsvörur

ELKO hóf sölu á fáguðu úrvali af unaðsvörum fyrir um ári síðan og spurði viðskiptavini hvort þeir hefðu fengið unaðsvöru í jólagjöf. Um 9,6% svöruðu spurningunni játandi og 14,2% sögðust ekki hafa verið svo heppin en væru til í það.

Þessi viðbót í vöruúrvalið hefur hlotið góðar viðtökurnar og ef marka má niðurstöður jólakönnunarinnar er líklegt að unaðsvörur rati jafnvel í einhverja jólapakka í ár.

Helmingur fær tvær eins jólagjafir

Þá kemur fram í könnuninni að um 52% hafi lent í því að fá tvær eins jólagjafir og því mikilvægt að huga að skilarétti á jólagjöfum.

„Til að tryggja að allar gjafir hitti í mark bjóðum við skilarétt á jólagjöfum fram til 31. janúar. Viðskiptavinir fá alltaf fullt verð vörunnar við skil eða skipti. Eins getur fólk prófað vörurnar áður en þeim er skilað og gilda þá almennir skilaskilmálar ELKO. Við fáum yfirleitt fyrirspurnir um miðjan október um hvenær við byrjum að bjóða jólaskilamiða á vörur úr ELKO. Í ár virkjuðum við skilamiðana 16. október og er þá um að ræða yfir 100 daga skilarétt fyrir þá sem byrjuðu snemma að kaup jólagjafir í ár,“ segir Arinbjörn að lokum.

Um helmingur fær tvær eins jólagjafir og því er gott …
Um helmingur fær tvær eins jólagjafir og því er gott að geta skilað og skipt. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is