Vekja athygli á „ógnvekjandi grimmd“

Nýja lagið er komið út.
Nýja lagið er komið út. Myndverk: James Merry

Björk og Rosal­ía hafa sam­einað krafta sína og sent frá sér lagið „Oral“. Þetta er í fyrsta skipti sem þær vinna sam­an. Tón­list­ar­kon­urn­ar tvær stjórnuðu upp­tök­un­um ásamt Sega Bo­dega.

„Mark­miðið með út­gáfu lags­ins er að vekja at­hygli á ógn­vekj­andi grimmd þegar kem­ur að sjókvía­eldi og þeim al­var­legu um­hverf­is- og vist­fræðilegu af­leiðing­um sem sjókvía­eldi hef­ur,” seg­ir í til­kynn­ingu.

Lagið var samið á tíma­bil­inu milli platn­anna Homo­genic (1997) og Vespert­ine (2001) með Björk en endaði með öðrum óút­gefn­um lög­um þar sem keim­ur „Oral“ var ólík­ur því efni sem endaði á plöt­unni.

End­urupp­götvaði lagið

Björk end­urupp­götvaði lagið eft­ir að titil­inn bar á góma þegar hún var á tón­leika­ferðalagi um Ástr­al­íu í mars síðastliðnum. Í sama mánuði var birt skýrsla sem fjallaði um skaðleg áhrif á ís­lenskt vist­kerfi vegna óljóss reglu­verks í kring­um norskt sjókvía­eldi.

„Eft­ir að hafa fundið mik­inn sam­hljóm með mál­efn­inu og sem ástríðufull bar­áttu­kona fyr­ir ýmis mál­efni í gegn­um tíðina, fékk Björk Rosal­íu til liðs við sig til að lífga lagið við og í kjöl­farið vekja at­hygli á málstaðnum. Sjókvía­eldi var kynnt fyr­ir Íslend­ing­um þegar norsk­ir viðskipta­menn hófu að kaupa eld­is­stöðvar í ís­lensk­um fjörðum. Vinnuaðferðir flýta fyr­ir vexti fisk­anna og í mörg­um til­vik­um með þeim af­leiðing­um að gena­breyt­ing­ar eiga sér stað í erfðaefni lax­anna. Í ofan á lag eru eld­is­stöðvarn­ar gróðrar­stía fyr­ir ýmis sníkju­dýr og sjúk­dóma. Iðnaður­inn á Íslandi hef­ur tí­fald­ast síðan 2014, upp­haf­leg fram­leiðsla var und­ir 4000 tonn­um en var kom­in upp í 45.000 tonn 2021, áætluð árs fram­leiðsla nú gæti verið allt upp að 106.500 tonn­um,” seg­ir í til­kynn­ing­unni.

„Á Íslandi má finna stærsta svæði ósnertr­ar nátt­úru í Evr­ópu. Úrgang­ur­inn og meng­un­in sem fylg­ir sjókvía­eldi ógn­ar hafsvæðinu og get­ur skaðað vist­kerfi þess til fram­búðar. Skort­ur á reglu­kerfi og lítið eft­ir­lit með iðnaðinum hef­ur líka haft þær af­leiðing­ar að þúsund­ir laxa sleppa reglu­lega og synda upp í ár á há­lend­is­svæðum Íslands og ögra þannig ís­lenska laxa­stofn­in­um,” seg­ir þar einnig.

Björk og Rosalia hafa ákveðið að gefa sjálf­seign­ar­stofn­un­inni AEG­IS all­an rétt þeirra til tekna af lag­inu „Oral“ til að berj­ast gegn sjókvía­eldi á Íslandi. Plötu­fyr­ir­tæki þeirra hafa einnig samþykkt það.

„All­ar tekj­ur munu ganga til greiðslu lög­fræðikostnaðar mót­mæl­enda, aðgerða til að stöðva upp­bygg­ingu eld­is­stöðva sem skaða dýra­líf, af­skræma fiska, og skapa hættu á erfðablönd­un eld­islax við villta laxa­stofna og skaða þannig mögu­leika þeirra til að lifa af í nátt­úr­unni. Taf­ar­laus­ar aðgerðir skipta sköp­um,” seg­ir í til­kynn­ing­unni.

mbl.is