Kynna þorskrannsóknir fyrir opnum dyrum

Frá stofnmælingu botsjávartegunda haustið 2022. Rannsóknir á þorski verða ræddar …
Frá stofnmælingu botsjávartegunda haustið 2022. Rannsóknir á þorski verða ræddar á málstofu Hafrannsóknastofnunar á morgun. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun/Svanhildur Egilsdóttir

Þorsk­ur­inn verður í aðal­hlut­verki á opn­um fundi Haf­rann­sókna­stofn­un­ar um þorsk­rann­sókn­ir á morg­un. Þar verða kynnt­ar niður­stöður úr tveim verk­efn­um, ann­ars veg­ar átaks­verk­efni í þorsk­rann­sókn­um og hins veg­ar verk­efnið „Sam­einuð við þorsk: marg­breyti­leiki þorskveiða og nýt­ing þeirra við fisk­veiðistjórn­un“.

Fram kem­ur á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar að fund­ur­inn verður í húsa­kynn­um stofn­un­ar­inn­ar að Fornu­búðum 5 í Hafnar­f­irði og er hann op­inn öll­um.

Fjallað verður meðal ann­ars um hlut­fall þorsk­hrygna sem slepp­ir úr hrygn­ingu við Ísland, upp­eld­is­stöðvar þorsk­seiða á Vest­fjörðum og heild­ar­át og sjálfrán þorsks við Ísland svo eitt­hvað sé nefnt.

mbl.is