Tæp 70% andvíg sjókvíaeldi

Tæplega 70% segjast mótfallin sjókvíaeldi við Ísland.
Tæplega 70% segjast mótfallin sjókvíaeldi við Ísland. mbl.is/Helgi Bjarnason

Alls sögðust 69% svar­enda í skoðana­könn­un Maskínu í nóv­em­ber sögðust vera and­víg­ir sjókvía­eldi við Ísland og aðeins 10% hlynnt­ir. Hef­ur hlut­fall þeirra sem eru and­víg­ir sjókvía­eldi auk­ist um tólf pró­sentu­stig frá könn­un Maskínu í mars og hlut­fall hlynntra dreg­ist sam­an um þriðjung eða fimm pró­sentu­stig.

Frá ár­inu 2021 hef­ur hlut­fall hlynntra meira en helm­ing­ast og hlut­fall and­vígra auk­ist um meira en 20 pró­sentu­stig.

Þetta rím­ar vel við þá þróun sem hef­ur átt sér stað und­an­far­in miss­eri ekki síst í kjö­f­ar þess að nokk­ur þúsund lax­ar sluppu úr sjókví Arctic Fish í Pat­reks­firði í ág­úst. Niður­stöður könn­un­ar Gallup sem kynnt­ar voru í byrj­un októ­ber gáfu til kynna að meira en helm­ing­ur lands­manna vilja banna lax­eldi í opn­um sjókví­um.

Sam­kvæmt könn­un Maskínu virðast Íslend­ing­ar vera mun já­kvæðari gagn­vart land­eldi þó stuðning­ur­inn hafi dvínað á und­an­förn­um tveim­ur árum og sögðust 47% svar­enda hlynnt­ir slíku lax­eldi í síðustu könn­un Maskínu á móti 55% sem sögðu hið sama í ág­úst 2021. Þá segj­ast 26% and­víg­ir land­eldi nú og er það næst­um því tvö­falt fleiri en fyr­ir tveim­ur árum.

Fram kem­ur á vef Maskínu að könn­un­in fór fram 3. til 7. nóv­em­ber og voru svar­end­ur 937. „Könn­un­in var lögð fyr­ir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhóp­ur fólks (e.panel) sem dreg­inn er með til­vilj­un úr Þjóðskrá, á net­inu. Svar­end­ur eru alls staðar að af land­inu og á aldr­in­um 18 ára og eldri. Svör voru veg­in sam­kvæmt mann­fjölda­töl­um Hag­stof­unn­ar um kyn, ald­ur, bú­setu og mennt­un, þannig að þau end­ur­spegla þjóðina prýðilega.“

mbl.is