Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur leiðir lesendur á slóðir víkinga í Austur-Evrópu fyrir rúmum þúsund árum í nýjustu bók sinni Land næturinnar. Í samstarfi Smartlands og Forlagsins talar hún um nýjustu bók sína.
„Fólk er að taka ýmis lyf, Ayahuasca til þess að fara í undirheimaferðir en það er alveg óþarfi. Fólk getur bara lesið Land næturinnar,“ segir Vilborg.
Þorgerður Þorsteinsdóttir hefur lifað mikinn harm heima á Íslandi og heldur til Noregs þar sem örlögin senda hana í faðm skinnakaupmannsins Herjólfs. Saman halda þau til Garðaríkis, á fund væringja sem sigla suður Dnépurfljót og yfir Svartahaf með ambáttir og loðfeldi á markað í Miklagarði. Í landi næturinnar bíða þeirra launráð og lífsháski. Á augabragði er Þorgerður orðin ein meðal óvina og kemst að því að
„Stundum þarf meira hugrekki að lifa en deyja,“ segir Vilborg.
Sagan hefst þar sem þar sem þræðinum sleppti í fyrri bókinni um Þorgerði, Undir Yggdrasil, en fyrir hana var Vilborg tilnefnd til Fjöruverðlaunanna 2021. Sögulegar skáldsögur hennar hafa notið mikilla vinsælda enda varpa þær nýju ljósi á líf og aðstæður kvenna í fortíðinni.