Förðunardrottningin og TikTok-stjarnan Embla Wigum átti jólalega daga í Stokkhólmi í Svíþjóð nýverið.
Embla er búsett í Lundúnum og hefur að undanförnu notið milda veðursins þar. Hún skellti sér hins vegar til Stokkhólms á dögunum ásamt vinkonum sínum þar sem þær fengu að upplifa alvöru jólastemningu í snævi þaktri borginni.
Eftir ferðina birti Embla myndaröð á Instagram, en þar má sjá skemmtileg augnablik úr ferðalagi vinkvenanna sem hlýjuðu sér með kokteilum eftir skemmtilegan dag í snjónum.