Gjald á eldislaxinn hækkar um 60%

Gjald á hvert framleitt kíló af eldislaxi hækkar um áramótin. …
Gjald á hvert framleitt kíló af eldislaxi hækkar um áramótin. Um er að ræða tæplega 60% hækkun. mbl.is/Helgi Bjarnason

Gjald á fisk­eldi í sjó hækk­ar um tæp 60% í til­felli lax­eld­is og 68% í til­felli regn­bogasil­ungs um ára­mót­in. Sam­kvæmt út­reikn­ing­um Fiski­stofu verður verður gjald á hvert kíló­gramm slátraðs lax 30,77 krón­ur og gjald á hvert kíló­gramm slátraðs regn­bogasil­ungs 15,39 krón­ur, að því er seg­ir á vef stofn­un­ar­inn­ar.

Fiski­stofa vek­ur jafn­framt at­hygli á að fyr­ir Alþingi ligg­ur frum­varp um breyt­ingu á á lög­um um gjald­töku í fisk­eldi sem leitt gæti til breyt­ing­ar á gjald­tök­unni, en verði frum­varpið samþykkt hækk­ar álagn­ingar­pró­sent­an úr 3,5% í 5%. Get­ur því gjaldið hækkað tölu­vert meira um ára­mót­in.

Nú­ver­andi fyr­ir­komu­lag miðar við 3,5% gjald á lax úr sjókvía­eldi þegar verð er 4,8 evr­ur á kíló­gramm eða hærra, 2% þegar verð er 4,3 evr­ur á kíló­gramm upp að 4,8 evr­um og 0,5% þegar verð er lægra en 4,3 evr­ur. Gjald á regn­bogasil­ung á að vera helm­ing­ur af því sem sett er á lax og á það einnig við um ófrjó­an lax og lax sem er al­inn í sjó með lokuðum eld­is­búnaði.

Inn­leiðing gjalds­ins sem samþykkt var 2019 byggði á að það myndi taka gildi í sjö áföng­um fram til árs­ins 2026 þannig að gjaldið myndi hækka um einn sjö­unda þar til það yrði inn­heimt til fulls.

Hafa inn­heimt 858 millj­ón­ir

Álagn­ing gjalds á sjókvía­eld­is er fyr­ir hálft ár í senn, tíma­bilið 1. janú­ar til 30. júní og svo 1. júlí til 31. júlí.

Mest hef­ur verið inn­heimt 224,8 millj­ón­ir króna á ein­um árs­helm­ing og var það síðari hluti árs­ins 2022. Frá árs­byrj­un 2020 hafa verið inn­heimt­ar 858,9 millj­ón­ir króna vegna gjalds á sjókvía­eldi á Íslandi.

Hef­ur ekki verið af­greitt

Frum­varp sem Bjarni Bene­dikts­son, þáver­andi efna­hags- og fjár­málaráðherra, mælti fyr­ir á Alþingi 12. sept­em­ber snýr að breyt­ingu fjölda laga i til­efni af fjár­lög­um og fel­ur í sér að álagn­ing á sjókvía­eldi hækki um 1,5 pró­sentu­stig í 5%. Frum­varpið hef­ur þó aðeins verið farið í gegn­um fyrstu umræðu á þingi af þrem­ur.

Óljóst er hvernig gjald­inu verður hagað eft­ir af­greiðslu Alþing­is en í lög­um er tíma­frest­ur Fiski­stofu til að aug­lýsa hvert gjaldið verður 31. des­em­ber næst­kom­andi fyr­ir gjaldið árið 2024.

mbl.is