Stefnir í 64,5% jaðarskatt á sjókvíaeldi

Verði álagningarhlutfall á sjókvíaeldi hækkað úr 3,5% í 5% mun …
Verði álagningarhlutfall á sjókvíaeldi hækkað úr 3,5% í 5% mun það þýða að jaðarskattur sem hlutfalla af afkomu verði um 64,5%. Það er hæsta skattlagning á fiskeldi á heimsvísu. mbl.is/Helgi Bjarnason

Verði frum­varp rík­is­stjórn­ar­inn­ar um breyt­ingu á ýms­um lög­um vegna fjár­laga 2024 samþykkt óbreytt mun álagn­ing­ar­hlut­fall gjalds sem lagt er á sjókvía­eldi hækka úr 3,5% í 5%. Verða þá á Íslandi hæstu skatt­ar sem hlut­fall af af­komu fisk­eld­is­fyr­ir­tækja á heimsvísu og get­ur slíkt haft veru­lega nei­kvæð á rekstr­ar­grund­völl eld­is­fyr­ir­tækj­anna, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un Morg­un­blaðsins.

Eins og fjallað hef­ur verið um á 200 míl­um mun gjald á sjókvía­eldi án fyr­ir­hugaðra breyt­inga hækka sjálf­krafa um ára­mót­in á grund­velli eldri laga. Um er að ræða 60% í til­felli lax og 68% í til­felli regn­bogasil­ungs.

Hækki álagn­ing­ar­hlut­fallið í 5% má gróf­lega áætla að gjaldið á hvert fram­leitt kíló af laxi í sjókví­um gæti orðið 44 krón­ur árið 2024, sem er um 140% hærra gjald en lagt var á þessa fram­leiðslu 2023.

Alltaf meira en helm­ing­ur

Að óbreyttu má áætla að tekj­ur rík­is­sjóðs af gjald­inu nemi 1.523 millj­ón­um króna árið 2024 ef tekið er mið af fram­leiðslu­áætlun­um fyr­ir­tækj­anna. Verði af­koma fyr­ir­tækj­anna á næsta ári svipað og und­an­far­in tvö ár (um fimm millj­arðar) er gjaldið á sjókvía­eldi rétt rúm 30% af af­komu. Ef litið er til tekju­skatts lögaðila, sem er 20%, og 1% viðbót­ar­skatts á lögaðila fjár­laga fyr­ir árið 2024 verður jaðarskatt­ur­inn 51% af af­komu fisk­eld­is­fé­laga.

Hækki álagn­ing­ar­hlut­fallið í 5% má reikna með að tekj­ur rík­is­sjóðs af gjald­inu verði rúm­ar 2.175 millj­ón­ir eða um 43,5% af af­komu fyr­ir­tækj­anna síðustu ár. Jaðarskatt­ur­inn á af­komu verður þá heil 64,5%.

Nán­ar er fjallað um málið í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: