Jákvæð tíðindi úr stofnmælingu Hafró

Sofnvísitölur fleiri tegunda hækkar eftir mælingu vísindamanna Hafrannsóknastofnunar í haust.
Sofnvísitölur fleiri tegunda hækkar eftir mælingu vísindamanna Hafrannsóknastofnunar í haust. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun/Valur Bogason

Nokkuð er um já­kvæð tíðindi úr haustr­alli Haf­rann­sókna­stofn­un­ar. Stofn­vísi­tala þorsks hækk­ar annað árið í röð og er stofn­vísi­tala ýsu áfram há. Þá er hækk­ar vísi­tala blálöngu og fjölda annarra teg­unda og eru vís­bend­ing­ar um aukna nýliðun í grá­lúðu.

Þetta er meðal þess sem fram kem­ur í helstu niður­stöðum stofn­mæl­ing­ar botn­fiska að haust­lagi sem fram fór dag­ana 28. sept­em­ber til 24. októ­ber og birt hef­ur verið á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar.

Stofn­vísi­tala þorsks í ár held­ur áfram að sýna hækk­un eft­ir tölu­verða lækk­un árin 2018 til 2021, en yngstu ár­gang­ar þorsks (ár­gang­ar 2021, 2022 og 2023) mæld­ust und­ir meðal­stærð í fjölda. Meðalþyngd­ir eru sagðar 1–4 ára þorsks mæld­ust und­ir meðaltali ár­anna 1996–2023 en eldri ár­gang­ar reynd­ust við eða yfir meðaltali.

Vísi­tala ýsu er svipuð og í fyrra sem var með þeim hæstu síðan mæl­ing­ar hóf­ust. Flest­ir ár­gang­ar ýsu mæld­ust yfir meðal­stærð í fjölda en líkt og í þorski var meðalþyngd 1–4 ára ýsu und­ir meðaltali rann­sókna­tíma­bils­ins.

Marg­ar vísi­töl­ur hækka

Fram kem­ur að vísi­tala blálöngu hækk­ar um­tals­vert í mæl­ing­unni í ár og vísi­tala gulllax mæl­ist sú hæsta frá upp­hafi mæl­inga. Auk þess er hækk­ar vísi­tala ým­issa teg­unda og er bent á þykkval­úru, stein­bít, hlýra, löngu, keilu og kol­munna.

Óhætt er að segja að gott er að frétta af lúðunni en vísi­tala stofns­ins er sú hæsta sm mælst hef­ur frá ár­inu 1996.

Þá hækka vísi­töl­ur flestra brjósk­fiska og annarra djúp­fiska­teg­unda eða standa í stað frá fyrra ári.

Áhöfnin á Breka við færibandaið í síðari hluta haustrallsins.
Áhöfn­in á Breka við færi­bandaið í síðari hluta haustr­alls­ins. Ljós­mynd/​Haf­rann­sókna­stofn­un/​Krist­ín Jó­hanna Vals­dótt­ir

Sum­ir stofn­ar standa höll­um fæti

Þá er vísi­tala gull­karfa hærri en und­an­far­in ár en vísi­tala djúpkarfa hef­ur verið svipuð en lág í um tutt­ugu ár. Nýliðun þess­ara tveggja stofna hef­ur hins veg­ar verið lé­leg um ára­bil og eru eng­ar vís­bend­ing­ar um breyt­ingu þar á.

Vísi­tala ufsa er und­ir lang­tímameðaltali og á það einnig við um grá­lúðu en þar vís­bend­ing­ar eru um bætta nýliðun.

Vísi­töl­ur sand­kola, skar­kola og hrogn­kels­is eru með þeim lægstu sem mælst hafa í haustr­alli.

Hlýn­un fyr­ir sunn­an og vest­an

Í ár tóku tog­ar­arn­ir Breki VE-61 og Þór­unn Sveins­dótt­ir VE-401 þátt í leiðangr­in­um ásamt rann­sókna­skip­inu Árna Friðriks­syni HF-200 og hef­ur stofn­mæl­ing að hausti verið fram­kvæmd með sam­bæri­leg­um hætti frá ár­inu 1996.

Mæl­ing­ar á botn­hita sjáv­ar sýndi kóln­un á minna en 400 m dýpi fyr­ir norðvest­an og norðaust­an en hlýn­un fyr­ir sunn­an og vest­an. Mæl­ing­ar sýndu einnig hlýn­un fyr­ir sunn­an á meira en 400 m dýpi en botn­hiti á þessu dýpi og öðrum svæðum stóð í stað eða sýndi merki kóln­un­ar.

mbl.is