Lögreglan hættir að rannsaka Arctic Sea Farm

Mat­væla­stofn­un fór fram á opinbera rannsókn eft­ir að til­kynnt var …
Mat­væla­stofn­un fór fram á opinbera rannsókn eft­ir að til­kynnt var um tvö göt á kví Arctif Sea Farm við Kvíg­ind­is­dal í Pat­reks­firði. mbl.is/Helgi Bjarnason

Lög­reglu­stjór­inn á Vest­fjörðum hef­ur hætt að rann­saka meint lög­brot Artic Sea Farm ehf. (Arctic Fish) vegna slysaslepp­ing­ar eld­islax úr fisk­eld­is­stöð í Pat­reks­firði í ág­úst. Ekki var tal­inn grund­völl­ur til að halda rann­sókn­inni áfram.

Frá þessu grein­ir lög­regl­an á Vest­fjörðum í færslu á banda­ríska miðlin­um Face­book. Málið varðar meint brot á 22. gr. laga um fisk­eldi nr. 71/​2008 vegna slysaslepp­ing­ar eld­islax úr fisk­eld­is­stöð í Kvíg­ind­is­dal í Pat­reks­firði í ág­úst.

Mat­væla­stofn­un fór fram á op­in­bera rann­sókn vegna meintra brota Arctic Sea Farm á lög­um um fisk­eldi eft­ir að til­kynnt var um tvö göt á kví fyr­ir­tæk­is­ins við Kvíg­ind­is­dal í Pat­reks­firði.

„Með bréfi lög­reglu­stjóra 19. des­em­ber [þriðju­dag] var rann­sókn hætt, þar sem ekki er tal­inn grund­völl­ur til að halda henni áfram, þar sem talið var að gögn máls­ins bæru ekki með sér að um­búnaður við kvína hafi verið áfátt vegna at­hafna eða at­hafna­leys­is sak­born­ings og sak­ir séu mikl­ar, í skiln­ingi 22. gr. sömu laga, eins og áskilið er,“ skrif­ar lög­regl­an.

mbl.is