Athafnakonan Ásdís Rán Gunnarsdóttir er ástfangin og ver jólunum með kærastanum Þórði Daníel Þórðarsyni í Búlgaríu. Þórður er búsettur í Búlgaríu og Ásdís Rán hefur verið með annan fótinn þar lengi.
Ásdís Rán óskar vinum sínum gleðilegra jóla á Facebook og greinir frá því hvar hún er stödd í heiminum. „Ég ætla að halda jól í Búlgaríu í ár og síðan ferðumst við til Íslands til þess að fagna áramótunum,“ skrifar Ásdís Rán. Hún er meðvituð um eldgosið og vonast til þess að náttúruöflin hagi sér vel og komi ekki í veg fyrir flugumferð fyrir gamlársdag. Ásdís Rán þekkir háloftin vel en hún er lærður þyrluflugmaður.
Lífið leikur við þau Ásdísi Rán og Þórð en í lok nóvember fögnuðu þau fimm mánaða sambandsafmæli. „Ég sem hélt ég gæti ekki orðið ástfangin, en það var víst ekki rétt þar sem honum tókst einhvernvegin að bræða mitt ískalda hjarta,“ skrifaði Ásdís Rán á samfélagsmiðla í síðasta mánuði.