Banna Arnarlaxi að fullyrða um sjálfbærni

Sjókvíar Arnarlax í Tálknafirði. Neytendastofa segir fullyrðingar um sjálfbærni framleiðsunnar …
Sjókvíar Arnarlax í Tálknafirði. Neytendastofa segir fullyrðingar um sjálfbærni framleiðsunnar óljósar og væri því villandi og óréttmætar gagnvart neytendum. mbl.is

Neyt­enda­stofa hef­ur bannað fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arn­ar­laxi að full­yrða um sjálf­bærni í markaðssetn­ingu og vörumerkj­um fé­lags­ins sem m.a. birt­ust á vefsíðu fé­lags­ins og í öðru aug­lýs­inga- og kynn­ing­ar­efni þess.

Í til­kynn­ingu á vef stofn­un­ar­inn­ar seg­ir að það sé álit henn­ar að „notk­un Arn­ar­lax á hug­tök­un­um sjálf­bær og sjálf­bærni væri al­menn og óljós og ekki studd nægi­leg­um gögn­um. Markaðssetn­ing­in gefi þannig hinum al­menna neyt­anda rang­lega til kynna að lax­eldi fé­lags­ins í sjókví­um væri að fullu sjálf­bært og hafi þannig eng­in eða í það minnsta hlut­laus áhrif á um­hverfið. Að mati Neyt­enda­stofu beri að líta til þess að notk­un Arn­ar­lax á full­yrðing­um sem inni­halda hug­tök­in sjálf­bær og sjálf­bærni sé nokkuð víðtæk og áber­andi. Notk­un­in væri tengd við orð- og mynd­merki fé­lags­ins sem komi fram á vefsíðu fé­lags­ins, í blaðaaug­lýs­ing­um og öðru markaðs- og kynn­ing­ar­efni.“

Á grund­velli þessa hafi Neyt­enda­stofa talið að notk­un og fram­setn­ing þeirra full­yrðinga og orð- og mynd­merkja sem um ræddi væri al­menn og óljós og væri því vill­andi og órétt­mæt gagn­vart neyt­end­um.

Arn­ar­lax rök­studdi notk­un­ina á hug­tök­un­um með því að vísa til þess að „fé­lagið starfi á grund­velli starfs- og rekstr­ar­leyfa frá Um­hverf­is- og Mat­væla­stofn­un sem veitt séu sam­kvæmt lög­um. Þá var vísað til þess að starf­semi fé­lags­ins væri vottuð alþjóðlegu vott­un­ar­kerfi, ASC, sem taki bæði til um­hverf­is- og sam­fé­lags­legra þátta. Þá hélt fé­lagið því fram að full­yrðing­ar þess bygg­ist á gögn­um og fag­leg­um niður­stöðum óháðra aðila, leyf­is­veit­enda og eft­ir­lits­stjórn­valda. Enn frem­ur sé það mat fé­lags­ins að Neyt­enda­stofa hafi ekki heim­ild­ir til að krefjast þess að það færi fram sér­staka sönn­un fyr­ir eða af­stöðu til þeirra orða sem fram komi í orðhluta vörumerkja fé­lags­ins.“

En sem fyrr seg­ir hef­ur Neyt­enda­stofa ekki fall­ist á rök fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins.

mbl.is