Eskja og Úthafsskip meðal nýrra hluthafa Geosalmo

Fyrsti áfangi landeldisstöðvar Geo Salmo í Ölfusi mun framleiða 7.300 …
Fyrsti áfangi landeldisstöðvar Geo Salmo í Ölfusi mun framleiða 7.300 tonn af laxi á ári. Mynd/Geo Salmo

GeoSalmo hef­ur lokið tveggja millj­arða króna fjár­mögn­un með þátt­töku norskra, sænskra, ís­lenskra og hol­lenskra fjár­festa. „Þessi niðurstaða ger­ir fé­lag­inu, sem und­ir­býr upp­bygg­ingu há­tækniland­eld­is á laxi, kleift að hefja þegar í stað fram­kvæmd­ir við fisk­eld­is­stöðvar sín­ar við Þor­láks­höfn ásamt því að halda áfram þeirri kröft­ugu þróun sem fé­lagið hef­ur unnið að á und­an­förn­um miss­er­um,“ að því er seg­ir í frétta­til­kynn­ingu.

Fram kem­ur að meðal fjár­festa sem koma nýir að verk­efn­inu núna eru Skel fjár­fest­inga­fé­lag, eig­end­ur sjáv­ar­út­vegs­fé­lags­ins Eskju og Úthafs­skip ásamt norsku iðnaðarsam­steyp­unni End­úr ASA og tengd­um aðilum og hol­lenska fisk­vinnslu- og dreif­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu Adri & Zoon.

GeoSalmo áform­ar bygg­ingu 24.000 tonna fisk­eld­is­stöðvar í Ölfusi, við Þor­láks­höfn. Fé­lagið hef­ur þegar lokið um­hverf­is­mati og skipu­lags­vinnu auk þess að hafa gert samn­ing við Orku Nátt­úr­unn­ar um 28 meg­awött af raf­magni til langs tíma fyr­ir alla upp­bygg­ingu land­eldistöðvar­inn­ar og full­an rekst­ur henn­ar.

Mik­il­væg­ur áfangi

„Þetta er mik­il­væg­ur áfangi fyr­ir okk­ur og trygg­ir fé­lag­inu fjár­magn til að taka næstu skref á veg­ferð þess. Við erum gríðarlega ánægð með þann hóp fjár­festa sem kem­ur að verk­efn­inu núna og þeirra reynsla og tengsl munu nýt­ast okk­ur af­skap­lega vel í upp­bygg­ingu verk­efn­is okk­ar, „seg­ir Jens Þórðar­son, fram­kvæmda­stjóri Geo Salmo, í til­kynn­ing­unni.

„Þetta sýn­ir jafn­framt trú fjár­festa á okk­ar sýn á land­eldi, tækni okk­ar og teymi,“ seg­ir hann.

Í stjórn fé­lags­ins koma inn, eft­ir hluta­fjáraukn­ing­una, Pål Reiulf Ol­sen, stjórn­ar­formaður End­úr og reynd­ur norsk­ur stjórn­ar­maður tengd­ur fisk­eldi, iðnaði og fjár­mála­mörkuðum og Mar­in­ella Har­alds­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Úthafs­skipa. Munu þau skipa stjórn fé­lags­ins ásamt stofn­anda og aðal­eig­anda GeoSalmo, Aðal­steini Jó­hanns­syni.

Jens Þórðarson.
Jens Þórðar­son. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is