Ragnheiður Kara Hólm, oftast kölluð Kara, er 24 ára nemi í hagfræði við Háskólann í Reykjavík. Í ársbyrjun 2023 ákvað hún að setja sér markmið á skemmtilegan máta og deildi því með fylgjendum sínum á TikTok í myndbandi sem vakti mikla athygli.
Margir kannast við að setja sér háleit markmið í byrjun árs sem gleymast svo eftir nokkrar vikur og segist Kara klárleg hafa verið ein af þeim.
„Í janúar 2023 skrifaði ég niður markmiðin mín fyrir árið en mig langaði að finna leið til þess að minna mig á hver þau væru og gera meira úr fögnuðinum þegar ég myndi ná markmiðunum. Ég ákvað að velja mér sjö stór markmið fyrir 2023 – einu skilyrðin voru að þau urðu að vera mikil áskorun, skipta mig máli og að ég þyrfti að leggja hart að mér til að ná þeim,“ útskýrir Kara.
„Síðan skrifaði ég hvert markmið niður á litla miða og batt þá við kampavínsflöskur þannig að hver flaska stóð fyrir eitt markmið. Ég er með flöskurnar á hillu við hliðina á rúminu mínu þannig að ég sé þær á hverjum degi til að minna mig á hvert ég stefni og hvað ég ætla að áorka á árinu. Þegar maður leggur svona mikið á sig til að ná markmiðunum sínum og nær þeim svo loksins er extra sætt að fagna þeim með því að opna flösku. Það er svo mikil stemning sem myndast í kringum þetta og þá verður bæði árangurinn og fögnuðurinn betri,“ bætir hún við.
Aðspurð segir Kara pælinguna á bak við markmiðaflöskurnar aðallega vera að gefa sér tíma til að staldra við og njóta augnabliksins þegar markmiði er náð í stað þess að æða áfram í næsta markmið.
„Þegar unnið er að því að ná markmiðum getur vegferðin oft verið lærdómsrík, erfið og krefjandi og oft fögnum við ekki nóg þegar markmiðinu er loksins náð heldur finnum bara næsta markmið og æðum af stað. Hins vegar gefa markmiðaflöskurnar þetta litla fagnaðaraugnablik til þess að staldra við og taka eftir þeim árangri sem hefur verið náð,“ segir hún.
Á árinu náði Kara að opna fimm af sjö flöskum. „Markmiðin sem ég setti mér og náði árið 2023 voru að klára fyrsta árið mitt í hagfræði, verða Dale Carnegie-þjálfari, komast í stjórn í skólanum, klára þriðju önnina í hagfræði og að halda mitt fyrsta Dale Carnegie námskeið.
Síðan er ég að fara í skiptinám í byrjun næsta árs sem var á einni flöskunni í ár og hún verður opnuð í Madríd í janúar. Ég náði því miður ekki að fara í fallhlífarstökk þetta árið og opna seinustu flöskuna, en það er aldrei að vita nema það markmið færist yfir til ársins 2024. Tilfinningin að ná markmiðunum sínum er ótrúlega sæt, sérstaklega þegar mikil vinna og metnaður eru á bak við hvert markmið,“ segir hún.
Kara segist strax vera farin að undirbúa markmiðaflöskur fyrir árið 2024. „Það mynduðust svo margar kjarnaminningar tengdar markmiðaflöskunum í ár að ég get ekki beðið eftir því að ná markmiðunum mínum fyrir 2024 og safna fleiri minningum. Upp á síðkastið hef ég verið að spá í því hver markmiðin mín eigi að vera fyrir 2024 en ég er ekki komin með eitthvað fast eins og er – nema kannski að fara í fallhlífarstökk sem var markmið frá 2023.
Annars voru tvær flöskur ekki með markmiði í byrjun janúar en svo þegar leið á árið komu til mín alls konar tækifæri sem ég varð að grípa og gera að markmiðum. Það er líka allt í lagi að vera ekki með fimm til sjö markmið í byrjun janúar. Lífið getur verið óútreiknanlegt og stundum koma hlutir til okkar sem við bjuggumst ekki við og það er ekkert að því að bæta við markmiðaflöskum á miðju ári,“ útskýrir hún.
Kara hvetur fólk eindregið til þess að taka eftir eigin árangri og fagna honum, enda hafi það gefið henni kraft til að setja sér stærri markmið og stefna lengra. Hún tekur þó fram að það sé alls ekki nauðsynlegt að nota áfengi til þess að ná markmiðum sínum.
„Það er klárlega hægt að útfæra þetta á annan hátt. Þetta þurfa alls ekki að vera áfengar flöskur og það væri mjög sniðugt að nota óáfengt kampavín eða eitthvað samskonar. Auðvitað getur fólk útfært þetta á annan hátt með einhverju öðru en flöskum en það eru einhverjir töfrar sem fylgja tilfinningunni að poppa tappann af flösku og skála með fólkinu sem stóð með þér í að ná markmiðinu,“ segir hún að lokum.