Spáir eldgosi 2. eða 3. janúar

Sigurjón Kjartansson, kvikmyndagerðarmaður telur að næst muni gjósa á Reykjanesi 2. eða 3. janúar. Það segist hann byggja að öllu leyti á yfirlýsingum jarðfræðinga.

Þetta kom fram í Spursmálum. Jón Gnarr, kollegi hans er ósammála þessu mati. Telur hann að gjósa muni 10. júlí á næsta ári.

Þá fullyrðir Sigurjón að Katla muni gjósa, ekki endilega á næsta ári en að það muni gerast á næstu 100 árum.

„En það gæti líka gerst á morgun.“

Þeir félagar mættu í settið til Stefáns Einars og gerðu upp árið 2023 og spáðu í spilin fyrir komandi ár.

Sjón er sögu ríkari:



mbl.is