Felast tækifæri í að fóðra lax með laxi

Vísindamenn telja mikil verðmæti vera í slori og afskurði sem …
Vísindamenn telja mikil verðmæti vera í slori og afskurði sem fellur til í laxeldinu. mbl.is/Helgi Bjarnason

Er um­hverf­i­s­vænna að stuðla að sjálfráni lax­fiska í sjókví­um? Það telja vís­inda­menn við norska tækni­há­skól­ann í Þránd­heimi (NTNU). Leggja þeir til að af­gangs­hrá­efni úr lax­eldi verði nýtt í fóður fyr­ir grein­ina, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un des­em­ber­blaðs 200 mílna.

Einn helsti kostnaðarliður lax­eld­is er fóður og er megnið inn­flutt. Vís­inda­menn við NTNU vilja meina að hægt sé að minnka kol­efn­is­sporið og verða minna háð inn­fluttu fóðri með því að nýta frek­ar eitt­hvað sem er fram­leitt í ná­lægð við eldið.

„Norðmenn flytja nú út mikið af heil­um laxi með haus, roði og bein­um. Við gæt­um þess í stað notað þetta af­gangs­hrá­efni til að búa til mat­væli eða laxa­fóðurs­efni hér á landi,“ hef­ur vís­inda­frétta­vef­ur­inn Forskn­ing.no eft­ir Ingrid Schafroth Sand­bakk­en. Hún er doktorsnemi hjá nátt­úru­vís­inda­sviði NTNU og hef­ur hún hlotið rann­sókna­styrk hjá Nutrim­ar í Þránd­heimi sem sér­hæf­ir sig í fram­leiðslu sjálf­bærra fóðurefna fyr­ir fisk­eldið.

Slor og af­sk­urður eru verðmæti

„Úr af­gangs­hrá­efni er hægt að búa til laxa­ol­íu og laxamjöl sem og laxa­vatns­rof (e. salmon hydrolysa­te). Það ger­um við hjá Nutrim­ar,“ seg­ir Sand­bakk­en. Tek­ur fyr­ir­tækið við af­gangs­hrá­efni frá starfs­stöð Salm­ar á eyj­unni Fröya vest­ur af Þránd­heimi.

Laxa­vatns­rof verður til þegar ensím sem meðal ann­ars má finna nátt­úru­lega í maga dýra eru nýtt til að brjóta niður hrá­efnið. Laxa­vatns­rof­inu er síðan komið aft­ur inn í fæðukeðjuna með því að hafa það í laxa­fóðri. Kost­irn­ir við að nota laxa­vatns­rof eru sagðir vera að efnið er auðmelt­an­legt og að fisk­um finnst það bragðast vel þannig að þeir éta meira.

Nán­ar má lesa um málið í des­em­ber­blaði 200 mílna.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: