Dóra til liðs við Hafrannsóknastofnun

Dóra MAgnúsdóttir hefur gengið til liðs við Hafrannsóknastofnun og er …
Dóra MAgnúsdóttir hefur gengið til liðs við Hafrannsóknastofnun og er nýr samskiptastjóri stofnunarinnar. Samsett mynd

Dóra Magnús­dótt­ir hef­ur verið ráðin í nýtt starf sam­skipta­stjóra Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, að þvír er seg­ir í frétta­til­kynn­ingu. Þar seg­ir að þessi nýja staða geri stofn­un­inni kleift að fylgja stefnu sinni um aukna áherslu á á upp­lýs­inga­miðlun, sam­skipti og al­manna­tengsl. Alls sóttu 49 um stöðu sam­skipta­stjóra stofn­un­ar­inn­ar.

Í til­kynn­ing­unni seg­ir að Dóra hafi yf­ir­grips­mikla þekk­ingu og reynslu á sviði sam­skipta og al­manna­tengsla. Hún hef­ur einnig reynslu af markaðsmá­l­um, vef-, verk­efna- og viðburðastjórn­un sem og blaðamennsku og leiðsögn. Dóra er með meist­ara­gráðu í op­in­berri stjórn­sýslu (MPA), gráðu í fjöl­miðla­fræði frá Há­skóla Íslands og viðskipta- og markaðsfræði frá In­teracti­ve Mar­ket­ing and Multi­media Aca­demy í Dan­mörku auk þess að vera með B.Sc.gráðu í land­fræði frá Há­skóla Íslands.

Áður en Dóra hóf störf hjá Haf­rann­sókn­ar­stofn­un starfaði hún sem fræðslu- og kynn­ing­ar­stjóri hjá Ráðgjaf­ar- og grein­ing­ar­stöð. Þar bar hún ábyrgð á nám­skeiðahaldi stofn­un­ar­inn­ar og öðrum fræðslu­mál­um ásamt kynn­ing­ar- og vef­mál­um, sam­fé­lags­miðlum, þróun ra­f­rænn­ar miðlun­ar og al­manna­tengsl­um.

Þorsteinn Sigurðsson forstjóri Hafrannsóknastofnunar.
Þor­steinn Sig­urðsson for­stjóri Haf­rann­sókna­stofn­un­ar. mbl.is/​Arnþór Birk­is­son

„Við hlökk­um til að fá góðan liðsmann til okk­ar til að efla innri og ytri sam­skipti Haf­rann­sókn­ar­stofn­un­ar. Við höf­um vænt­ing­ar um að með þessu nýja starfi og breytt­um áhersl­um varðandi sam­skipti verðum við enn fremri en við höf­um verið á sviði al­manna­tengsla og miðlun upp­lýs­inga“ er hafy eft­ir Þor­steini Sig­urðssyni, for­stjóra Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, í til­kynn­ing­unni.

„Ég er mjög áhuga­söm um þá mik­il­vægu starf­semi sem Haf­rann­sókn­ar­stofn­un sinn­ir enda að upp­lagi afar for­vit­in mann­eskja. Þó ég sé ný­byrjuð hef ég þegar áttað mig á að hér starfar heill her af gríðarlega vel menntuðu og hæfu fólki. Fólk sem býr yfir yf­ir­grips­mik­ill þekk­ingu, um líf­ríki sjáv­ar og vatna, sem nauðsyn­leg er þjóð sem bygg­ir af­komu sína að miklu leyti á nátt­úru­legu um­hverfi sínu; hafi og vötn­um,“ seg­ir Dóra Magnús­dótt­ir, nýr sam­skipta­stjóri Haf­rann­sókna­stofn­un­ar.

mbl.is