Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að senda tillögu Sjálfstæðisflokksins, sem felur í sér að kalla eftir sundurgreindum niðurstöðum úr PISA-könnuninni árið 2022 niður á hvern þátttökuskóla í Reykjavík, til umsagnar Menntamálastofnunar.
Á að nýta niðurstöðurnar sem mælitæki til að meta árangur einstakra skóla, hvar úrbóta sé þörf og setja grunnskólum borgarinnar mælanleg markmið.
Ísland stóð sig verst allra Norðurlanda í könnuninni og niðurstöður sýna að 40% nemenda geta ekki lesið sér til gagns eftir að hafa lokið grunnskólanámi á Íslandi.
Eistland er efst Evrópulanda í niðurstöðum PISA-könnunarinnar.
Kristina Kallas, menntamálaráðherra landsins, sagði í samtali við mbl.is í desember að mikilvægt væri að upplýsa skólana um gengi nemenda þeirra, til að skólarnir geti metið styrkleika sína og horft til þess sem þarf að bæta.
Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Menntamálastofnunar, sagði í viðtali við mbl.is á dögunum að stofnunin byggi ekki yfir gögnum sem sýndi frammistöðu einstakra grunnskóla eða sveitarfélaga í PISA-könnuninni, heldur aðeins heildarniðurstöðu yfir nemendur Reykjavíkurborgar.
Sagði hún auk þess niðurstöðurnar fyrir hvern skóla geta verið misvísandi þar sem nemendur taki flestir bara einn hluta úr prófinu, sem er þrískipt, og spurningar misþungar.
„Þannig gæti þess vegna eitt barn tekið náttúruvísindahlutann og eitt barn stærðfræðihlutann eða tvö hvorn hluta í einum ákveðnum skóla. Ætlum við þá að bera ábyrgð á því að senda þær niðurstöður í skólann sem eru ekki réttar?“ sagði hún í viðtali við mbl.is.