270 umsagnir um eldisfrumvarp matvælaráðherra

Alls hafa borist 270 umsagnir um lagareldisfrumvarp Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra.
Alls hafa borist 270 umsagnir um lagareldisfrumvarp Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra. mbl.is/Helgi Bjarnason

Alls hafa rúm­lega 260 aðilar skilað 270 um­sögn­um um frum­varp Svandís­ar Svavars­dótt­ur til nýrra laga um lagar­eldi (sam­heiti fyr­ir eld­is og rækt­un­ar­grein­ar) sem birt hef­ur verið í sam­ráðsgátt. Fresti til um­sagn­ar lauk á miðviku­dag, en virðist hafa verið fram­lengd­ur til dags­ins í dag. Flest­ar um­sagn­ir snú­ast um sjókvía­eldi, en sú grein er harðlega gagn­rýnd í þeim um­sögn­um sem borist hafa.

Í frum­varps­drög­un­um er gert ráð fyr­ir veru­lega hert­um skil­yrðum sjókvía­eld­is og er meðal ann­ars gert ráð fyr­ir breyt­ing­um á laga­ákvæðum er snúa að áhættumati erfðablönd­un­ar, út­víkk­un friðun­ar­svæða til að ná yfir Eyja­fjörð og Öxar­fjörð, inn­leiðing nýrra smit­varn­ar­svæða, breytt fyr­ir­komu­lag út­hlut­un­ar rekstr­ar­leyfa og aukið eft­ir­lit.

Jafn­framt eru lagt til að gera breyt­ing­ar á lög­um til að mynda skýr­ari ramma um land­eldi og út­hafseldi.

Fjöldi af­ritaða um­sagna

Alls er 122 um­sagn­ir al­gjör­lega sam­hljóma og eru á þá vegu að banna eigi sjókvía­eldi. „Íslensk nátt­úra og villt­ir laxa­stofn­ar standa nú á kross­göt­um. Lög um lagar­eldi munu hafa áhrif á af­komu og framtíð vist­kerfa á Íslandi og því er al­gjör­lega nauðsyn­legt að nátt­úr­an fái að njóta vaf­ans og eng­ir af­slætt­ir séu gefn­ir. Ég krefst þess að stjórn­völd banni lax­eldi í opn­um sjókví­um,“ segja fyrstu setn­ing­ar í þess­um um­sögn­um.

Þeir sem segj­ast fylgj­andi banni gera þó til vara kröfu um mun þrengri rekstr­ar­skil­yrði sjókvía­eld­is um­hverf­is Ísland en lagt er til í frum­varps­drög­un­um.

Þá skila að minnsta kosti sex­tán er­lend­ir aðilar inn um­sögn­um þar sem þeir biðla til ís­lenskra yf­ir­valda að vernda villta ís­lenska laxa­stofn­inn. Stór hluti þessa hóps hafa ferðast hingað til lands til að stunda laxveiða, en einnig er um að ræða til dæm­is mál­svara norskra veiðirétt­hafa (Nor­ske Lak­seel­ver).

Margir hafa skoðun á sjókvíaeldi við Íslandsstrendur.
Marg­ir hafa skoðun á sjókvía­eldi við Íslands­strend­ur. mbli,is/Á​gúst Ingi Jóns­son

Stuðnings­yf­ir­lýs­ing­ar og trúnaðar­mál

Í 48 um­sögn­um er sam­hljóma lýst yfir sér­stök­um stuðningi við til­lögu mat­vælaráðherra um að friða Eyja­fjörð og Öxar­fjörð.

„Lýst er ein­dregn­um stuðningi við þá til­lögu sem er að finna í frum­varpi mat­vælaráðherra um lagar­eldi að Eyja­fjörður og Öxar­fjörður bæt­ist í hóp þeirra fjarða og flóa sem njóta friðunar fyr­ir sjókvía­eldi og þannig verði til heild­stætt friðunar- og vernd­ar­svæði fyr­ir öllu Norður og Norðaust­ur­landi til vernd­ar ís­lenskri nátt­úru og líf­fræðilegri fjöl­breytni. Þá er einnig stutt að slík friðun verði færð úr reglu­gerð í lög,“ seg­ir í þess­um um­sögn­um.

Einn um­sagn­ar aðili hef­ur skilað um­sögn sem ekki er birt og er ekki und­ir nafni, en um­sagn­ir eru að meg­in­reglu birt­ar jafnóðum og þær ber­ast sam­kvæmt regl­um um sam­ráðsgátt stjórn­valda. Þar seg­ir að þátt­tak­end­um í sam­ráði er boðið upp á val­kost­inn að óska eft­ir að efni um­sagn­ar og nafn send­anda birt­ist ekki í gátt­inni.

Ekki eru þó all­ir á einu máli og vara Sam­tök at­vinnu­lífs­ins við áhrif­um íþyngj­andi reglu­verks og óhóf­legr­ar gjald­töku.

Þá hafa sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi áður sent frá sér yf­ir­lýs­ingu vegna frum­varps­drag­anna þar sem sagði meðal ann­ars: „Lagðar eru til svo viður­hluta­mikl­ar refs­ing­ar og viður­lög við til­tekn­um atriðum, að vegið er al­var­lega að rekstr­ar­grund­velli fyr­ir­tækja í sjókvía­eldi á Íslandi.“

Enn er verið að birta um­sagn­ir og gæti vel farið svo að þær nái 300 áður en fresti lýk­ur. Upp­haf­lega átti um­sagn­ar­fresti að ljúka 3. janú­ar en hann var fram­lengd­ur til 10. janú­ar í kjöl­far mik­ill­ar gagn­rýni á að tími til að kynna sér inni­hald frum­varps­drag­ana væri of skamm­ur. Sem fyrr seg­ir er skráð í sam­ráðsgátt­ina að um­sagn­ar­frest­ur­inn lýk­ur í dag og virðist því frest­in­um hafa verið fram­lengt í annað sinn.

mbl.is