Sjósetja nýtt hafrannsóknaskip í dag

Nýtt hafrannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar fær nafnið Þórunn Þórðardóttir í kjölfar sjósetningu …
Nýtt hafrannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar fær nafnið Þórunn Þórðardóttir í kjölfar sjósetningu í dag. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun

Nýtt rann­sókna­skip Haf­rann­sókna­stofn­un­ar verður sjó­sett síðdeg­is í dag 12. janú­ar í skipa­smíðastoð Armon í borg­inni Vigo á Spáni og verður skip­inu gefið nafnið Þór­unn Þórðardótt­ir með form­leg­um hætti við það tæki­færi. Nafnið fær skipið eft­ir fyrstu ís­lensku kon­unni sem var sér­fræðimenntuð í haf­rann­sókn­um og mikl­um frum­kvöðli í rann­sókn­um á smáþör­ung­um í haf­inu við Ísland.

Þetta má lesa í frétta­til­kynn­ingu frá Haf­rann­sókna­stofn­un, enupp­haf­lega var gert ráð fyr­ir að skipið yrði sjó­sett 15. des­em­ber.

Þórunn Þórðardóttir við störf.
Þór­unn Þórðardótt­ir við störf. Ljós­mynd/​Stjórn­ar­ráðið

Fram kem­ur að áætlan­ir gera ráð fyr­ir að hið nýja rann­sókna­skip verður verði af­hent til Íslands í lok árs. Skipið mun taka við af rann­sókn­ar­skip­inu Bjarna Sæ­munds­syni sem fagn­ar í ár 54 ald­ursári sínu í þjón­ustu fyr­ir haf­rann­sókn­ir hér við land.

„Það er með mik­illi ánægju sem við nefn­um nýja rann­sókn­ar­skipið Þór­unni Þórðardótt­ur; í höfuðið á konu sem ól all­an sinn starfs­ald­ur hjá Haf­rann­sókn­ar­stofn­un og áður hjá fyr­ir­renn­ara stofn­un­ar­inn­ar (At­vinnu­deild Há­skóla Íslands, fiski­deild) en eitt helsta af­rek Þór­unn­ar voru rann­sókn­ir og mat á heild­ar­frum­fram­leiðni svifþör­unga á Íslands­miðum enda eru svifþör­ung­ar und­ir­staða fæðukeðju hafs­ins. Fram­lag Þór­unn­ar til vís­inda er okk­ur öll­um mik­il­vægt og því vel við hæfi að skipið beri nafn henn­ar í haf­rann­sókn­um næstu kyn­slóða vís­inda­fólks,“ er haft eft­ir Þor­steini Sig­urðssyni, for­stjóra Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, í til­kynnign­unni.

Tæp­lega fimm millj­arðar

Til­kynnt var um und­ir­rit­un samn­inga um smíði nýs rann­sókna­skips 1. apríl 2022. Var gert ráð fyr­ir að smíði skips­ins myndi kosta 33,45 millj­ón­ir evra sem var þá jafn­v­irði 4,8 millj­arða ís­lenskra króna.

mbl.is