Helga Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri Spaks Invest hf, fagnar 50 ára afmæli í dag. Hún er dugleg að fara út að hlaupa og gerir það meðal annars með unnusta sínum, Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra, eins og fram kemur í afmælisviðtali við hana í Morgunblaðinu í dag.
„Ég hleyp nánast á hverjum degi. Fer út á morgnana með unnusta mínum og hundi. Börnin mín eru líka að hlaupa og hafa hlaupin sameinað okkur öll. Næsta áskorun er maraþon í París 7. apríl næstkomandi. Það eru ein mestu forréttindi í lífinu að fá að stunda íþróttir með fjölskyldunni,“ segir Helga í viðtalinu.
Hundurinn hlaupaglaði heitir Balto og er af tegundinni Alaskan Malamute.
Helga og Ásgeir greindu frá því fyrir þremur árum að þau væru trúlofuð en þá höfðu þau verið saman í rúmlega tvö ár.
Nánar má lesa um afmæli Helgu í Morgunblaðinu í dag, þriðjudag.