Leysigeisli nýjasta vopn Íslendinga gegn lúsinni

Hátæknibúnaðurinn frá Stingray Marine Solutions AS í Noregi notar leyssigeisla …
Hátæknibúnaðurinn frá Stingray Marine Solutions AS í Noregi notar leyssigeisla til að eyða laxalús á fiskum í sjókvíum. Háafell verður fyrsta fyrirtækið hér á landi sem tekur í notkun búnað af þessu tagi. Ljósmynd/Stingray

Háa­fell ehf. sem rek­ur lax­eldi í Djúp­inu hef­ur ákveðið að frjár­festa í há­tækni­búnaði sem nýt­ir mynd­grien­inga­tækni studd af gervi­greind til að finna laxal­ús á fisk­um og eyða þeim með leysi­geisla, að því er fram kem­ur í frétta­til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu.

Lausn­in er frá norska fyr­ir­tæk­inu Stingray Mar­ine Soluti­ons AS og eru í dag yfir þúsund slík leyser­tæki í notk­un í Nor­egi sem skjóta lýs af laxi og gef­ur reynsl­an von um tölu­verðan ár­ang­ur í bar­átt­unni gegn lús­inni.

Starfs­menn Háa­fells eru sagðir hafa fylgst með þróun tækn­inn­ar um nokk­urt skeið og gátu þeir kynnst tækn­inni enn bet­ur í des­em­ber síðastliðnum er þeir heim­sóttu eld­is­fyr­ir­tæki í Norður-Nor­egi sem lausn­in er í notk­un við sam­bæri­leg­ar aðstæður og hér á landi.

Var í kjöl­far ferðar­inn­ar ákveðið að gera samn­ing við Stingray um kaup á fyrstu tækj­un­um sem vænt­an­leg eru til lands­ins siðla vors og verða þau sett upp í Kof­ra­dýpi í Ísa­fjarðar­djúpi.

Fram kem­ur í til­kynn­ing­unni að tæk­in fjar­lægja ekki ein­ung­is lýs held­ur get­ur búnaður­inn einnig talið lús auk þess sem hann hef­ur hug­búnað til þyngd­ar­mæl­inga og mæl­inga ým­issa fleiri lífræðilegra þátta án inn­gripa fyr­ir fisk­inn.

Stolt að vera fyrsta fyr­ir­tækið

„Við erum mjög ánægð með að hafa náð sam­komu­lagi við Stingray og stolt að vera fyrsta fyr­ir­tækið á Íslandi til þess að taka þessa snjöllu lausn í notk­un sem við bind­um mikl­ar von­ir við.  Um er að ræða um­hverf­i­s­væna leið til þess að berj­ast við lús­ina og er sömu­leiðis fyr­ir­byggj­andi aðgerð sem er mjög í takt við grunn­stefnu Háa­fells um að ganga vel um Djúpið og tryggja sem besta vel­ferð lax­ins,“ seg­ir Gauti Geirs­son, fram­kvæmda­stjóri Háa­fells, í til­kynn­ing­unni.

Geuti Geirsson, framkvæmdastjóri Háafells.
Geuti Geirs­son, fram­kvæmda­stjóri Háa­fells. Ljós­mynd/​Háa­fell

„Við í Stingray höf­um hrif­ist af sýn og metnaði Háa­fells í vel­ferðar- og um­hverf­is mál­um sem rýmar vel við stefnu okk­ur um að hjálpa eld­is­fyr­ir­tækj­um á Íslandi á sjálf­bær­an hátt.  Ég er sann­færður um að okk­ar tækni muni geta styrkt ís­lenskt fisk­eldi sem um­hverf­i­s­væna mat­væla­fram­leiðslu í sín­um hreinu fjörðum til framtíðar með aukna vel­ferð eld­is­fisks­ins að leiðarljósi,“ er haft eft­ir John Arne Brei­vik, fram­kvæmda­stjóra Stingray.

mbl.is