Vantrauststillagan formlega afturkölluð

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins.
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins. mbl.is/Árni Sæberg

Van­traust­stil­laga Flokks fólks­ins, á hend­ur Svandísi Svavars­dótt­ur mat­vælaráðherra, hef­ur nú verið aft­ur­kölluð.

Er þetta gert í kjöl­far þess að Svandís til­kynnti um klukk­an 15 í dag, þegar þing kom aft­ur sam­an, að hún hefði í morg­un fengið staðfesta grein­ingu á brjóstakrabba­meini. Af þeim sök­um hygðist hún taka leyfi frá störf­um.

Eng­inn brag­ur á því

Inga Sæ­land, formaður Flokks fólks­ins, brást við tíðind­un­um í sam­tali við mbl.is og kvað telja það lík­legt að til­lag­an yrði dreg­in til baka.

„Það er eng­inn brag­ur á því að leggja fram van­traust á ein­stak­ling sem ekki er hér til þess að verja sig sjálf­ur,“ sagði Inga.

„Þetta eru slá­andi frétt­ir og við send­um henni bata­kveðjur.“

mbl.is