Arnarlax fær leyfi fyrir seiðastöð við Tálknafjörð

Seiðeldisstöð Arnarlax að Hallkeslhólum. Félagið stefnir að því að koma …
Seiðeldisstöð Arnarlax að Hallkeslhólum. Félagið stefnir að því að koma upp annari seiðastöð að Gilseyri við Tálknafjörð. Ljósmynd/Icelandic Salmon

Mat­væla­stofn­un hef­ur veitt Arn­ar­lax ehf. rekstr­ar­leyfi til fisk­eld­is á landi að Gi­leyri við Tálkna­fjörð. Um er að ræða nýtt rekstr­ar­leyfi fyr­ir 1.000 tonna há­marks­líf­massa vegna seiðaeld­is á laxi og bleikju sem síðar verða sett út í sjókví­ar fé­lags­ins til áframeld­is.

Fram kem­ur í til­kynn­ingu á vef Mat­væla­stofn­un­ar að Arn­ar­lax hf. sótti um nýtt rekstr­ar­leyfi í júní 2022. Er vak­in at­hygli á að starf­sem­in er einnig háð starfs­leyfi Um­hverf­is­stofn­un­ar.

Til­laga Mat­væla­stofn­un­ar um að rekstr­ar­leyfi var aug­lýst á vef stofn­un­ar­inn­ar þann 8. nóv­em­ber 2023. Við aug­lýs­ingu til­lögu að nýju rekstr­ar­leyfi var til­kynnt um að frest­ur til að skila inn at­huga­semd­um var 6. des­em­ber 2023, en eng­in at­huga­semd barst vegna til­lög­unn­ar.

Lít­il hætta tal­in á slepp­ing­um

Óskað var eft­ir um­sögn­um frá Fiski­stofu, Haf­rann­sókna­stofn­un og Tálkna­fjarðar­hrepp þann 14. nóv­em­ber 2022. Hvorki Tálkna­fjarðar­hrepp­ur né Haf­rann­sókna­stofn­un skilaði um­sögn vegna máls­ins.

Í um­sögn Fiski­stofu frá 24. fe­brú­ar kem­ur fram að stofn­un­in tel­ur að þar sem um land­eldi sé að ræða sé ekki mik­il hætta á að smit ber­ist í villta stofna og hægt sé að bregðast við ef sjúk­dóm­ar koma upp í eld­is­stöðinni og varna því að smit ber­ist frá stöðinni. Fiski­stofa bend­ir á að mik­il­vægt sé að huga sér­stak­lega að því að affall frá stöðinni sé þannig út­búið að fisk­ar sleppi ekki úr stöðinni.

„Mat­væla­stofn­un bend­ir á að í rekstr­ar­leyf­um fisk­eld­is­stöðva á landi er skil­yrði að stöð sé út­bú­in búnaði sem kem­ur í veg fyr­ir að fisk­ur sleppi úr eldisk­ari og búnaði staðsett­um í frá­rennsli stöðvar sem fang­ar fisk sem slepp­ur. Búnaður eld­is­stöðvar­inn­ar er þannig að í öll­um kör­um eru rist­ar til að hindra að fisk­ur geti strokið og einnig eru rist­ar í brunn­um sem dauðfisk­ur safn­ast í. Óveru­leg­ar lík­ur eru tald­ar á stroki úr stöðinni þegar til­lit er tekið til varn­ar­búnaðar í kör­um og í frá­rennsli stöðvar­inn­ar,“ seg­ir í grein­ar­gerð Mat­væla­stofn­un­ar.

mbl.is