Leggur áherslu á að klára eldisfrumvarp

Katrín Jakobsdóttir kveðst þurfa að forgangsraða í hlutverki matvælaráðherra og …
Katrín Jakobsdóttir kveðst þurfa að forgangsraða í hlutverki matvælaráðherra og leggur áherslu á að ljúka vinnu við eldisfrumvarp. mbl.is/Árni Sæberg

Katrín Jak­obs­dótt­ir for­sæt­is­ráðherra kveðst í sam­tali við Morg­un­blaðið í dag leggja áherslu á að frum­varp að nýj­um heild­ar­lög­um fyr­ir eld­is- og rækt­un­ar­grein­ar verði klárað og lagt fyr­ir Alþingi. Seg­ist hún þurfa að for­gangsraða verk­efn­um á meðan hún gegn­ir störf­um mat­vælaráðherra sem er í veik­inda­leyfi.

„Ég er búin að biðja um að lokið verði við að vinna úr um­sögn­um og sé það fyr­ir mér að í kjöl­farið verði fundað með helstu hagaðilum um það mál og kannað hvernig þær breyt­ing­ar sem gerðar hafa verið á frum­varp­inu í kjöl­far um­sagna munu mæl­ast fyr­ir. Ég mun vinna að því og for­gangsraða því að þetta mál komi fram,“ seg­ir Katrín.

Spurð hvort það geti farið svo að frum­varpið að nýj­um heild­ar­lög­um fyr­ir sjáv­ar­út­veg­inn verði ekki af­greitt fyr­ir þinglok í vor svar­ar Katrín:

„Það er al­veg ljóst að veik­indi ráðherr­ans setja ákveðið strik í reikn­ing­inn. Ég tek þessa vakt á meðan og verð að for­gangsraða mál­um. [...] Hvort frum­varpið kem­ur núna fram, það er stefnt að því að þetta verði lagt fram á þessu þingi en síðan verða þær lín­ur bara að skýr­ast – hvenær það ná­kvæm­lega verður,“ svar­ar Katrín.

Nán­ar má lesa um málið í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: