Ákvörðun lögreglustjórans kærð til ríkissaksóknara

Arctic Fish er með eldi í nokkrum fjörðum Vestfjarða.
Arctic Fish er með eldi í nokkrum fjörðum Vestfjarða. mbl.is/Helgi Bjarnason

Mat­væla­stofn­un hef­ur kært til rík­is­sak­sókn­ara ákvörðun lög­reglu­stjór­ans á Vest­fjörðum um að hætta rann­sókn á meintu lög­broti Arctic Sea Farm ehf. (Arctic Fish) vegna slysaslepp­ing­ar eld­islax úr fisk­eld­is­stöð í Pat­reks­firði í ág­úst.

Vef­ur Bæj­ar­ins besta grein­ir frá þessu og seg­ir að alls hafi 27 kær­ur borist frá ýms­um aðilum en aðeins málsaðilar geta kært. 

Haft er eft­ir embætti rík­is­sak­sókn­ara að skoðað verði í fram­hald­inu hverj­ir telj­ist málsaðilar og hafi kæru­rétt.

Ekki tal­inn grund­völl­ur til að halda rann­sókn áfram

Mat­væla­stofn­un fór fram á op­in­bera rann­sókn vegna meintra brota Arctic Sea Farm á lög­um um fisk­eldi eft­ir að til­kynnt var um tvö göt á kví fyr­ir­tæk­is­ins við Kvíg­ind­is­dal í Pat­reks­firði.

Með bréfi lög­reglu­stjóra 19. des­em­ber [þriðju­dag] var rann­sókn hætt, þar sem ekki er tal­inn grund­völl­ur til að halda henni áfram, þar sem talið var að gögn máls­ins bæru ekki með sér að um­búnaður við kvína hafi verið áfátt vegna at­hafna eða at­hafna­leys­is sak­born­ings og sak­ir séu mikl­ar, í skiln­ingi 22. gr. sömu laga, eins og áskilið er,“ sagði í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni á Vest­fjörðum í des­em­ber. 

mbl.is