Útvarpskonunni Siggu Lund var sagt upp í vikunni en hún starfaði á Bylgjunni. Sigga Lund segir að nú séu kaflaskil en hún gengur frá borði full þakklætis. Sigga greinir sjálf frá uppsögninni á Instagram.
„Ég fékk reisupassann í vikunni og starfa ekki lengur á Bylgjunni. Minna starfskrafta er ekki lengur óskað var mér tjáð,“ skrifar Sigga á Instagram. Hún er þakklát fyrir tímann hjá Bylgjunni og fyrir tækifærin sem hún fékk þar. Hún segist vera þakklát fyrir fólkið sem hún vann með og fyrir hlustendur.
„Ég er líka bara svo þakklát fyrir þennan kafla sem er lokið. Hann var athyglisverður og mjög svo lærdómsríkur. Hann gaf mér færi á að vaxa heilan helling. Ég hlakka til næsta kafla, og þeysi af stað hvergi banginn. Ég hef aldrei verið betri og ég veit það, það er herslumunurinn,“ segir Sigga sem þakkar að lokum Bylgjunni og hlustendum fyrir að hlusta.
Bylgjan er í eigu Sýnar en 11 starfsmönnum var sagt upp hjá fyrirtækinu í vikunni. Samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu störfuðu þessir starfsmenn þvert á svið þess.