Hjónin Björn Steffensen og Anna Eiríksdóttir hafa fest kaup á glæsilegu 254 fm einbýli við Frostaþing í Kópavogi. Húsið er staðsett á fallegum stað þar sem stutt er í óbeislaða náttúru.
Björn starfaði sem fyrirsæta á sínum yngri árum og var kjörinn Herra Norðurlönd 1996. Anna er deildarstjóri í líkamsræktarstöðinni Hreyfingu og rekur vefinn annaeiriks.is þar sem hún býður upp á æfingar og heilsuráð fyrir fólk sem vill bæta heilsuna.
Húsið við Frostaþing er byggt í funkisstíl og var reist 2013. Það er á tveimur hæðum og afar sjarmerandi. Á efri hæðinni er hátt til lofts og vítt til veggja. Hvítar sprautulakkaðar innréttingar prýða húsið og er gegnheilt parket á gólfunum.
Anna og Björn keyptu húsið af Dagrúnu Briem og Guðjóni Gústafssyni og greiddu fyrir það 202 milljónir.
Anna og Björn hafa búið í Grafarvoginum og er hús þeirra á sölu eins og kom fram á dögunum.
Smartland óskar Önnu og Birni til hamingju með nýja húsið!