Rikardsen nýr forstjóri Ice Fish Farm

Sjókvíar Ice Fish Farm.
Sjókvíar Ice Fish Farm. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Roy-Tore Rik­ardsen mun taka við af Guðmundi Gísla­syni sem for­stjóri fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Ice Fish Farm.

Rik­ardsen hef­ur starfað sem yf­ir­maður hjá Grieg Sea­food í Norður-Am­er­íku, að því er Intrafish grein­ir frá, síðan í maí árið 2020. Þar áður starfaði hann sem svæðis­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins í Finn­mörk.

Guðmund­ur til­kynnti um af­sögn sína í sept­em­ber síðastliðnum.

Rik­ardsen hef­ur starfað við fisk­eldi í yfir 20 ár bæði í Nor­egi og Kan­ada.

mbl.is