Verðmætin í hverri kví um 600 milljónir króna

Brunnbáturinn Novatrans sækir um 70-90 ton á dag úr kvíum …
Brunnbáturinn Novatrans sækir um 70-90 ton á dag úr kvíum Arctic Fish í Arnarfirði. Eldisstöðin við Hvestu verður orðin tóm um Páska. Ljósmynd/Arctic Fish: Haukur Sigurðsson

Fyrsta októ­ber síðastliðinn hófst slátrun á laxi úr eld­is­stöð Arctic Fish við Hvestu í Arnar­f­irði. Slátrun stend­ur enn yfir en gert er ráð fyr­ir að henni ljúki fyr­ir Páska. Um er að ræða um fimm kílóa lax í fremsta gæðaflokki, að því er seg­ir í til­kynn­ingu Arctic Fish.

Brunn­bát­inn Novatrans sæk­ir að jafnaði um 70 til 90 tonn á dag, fjóra daga vik­unn­ar til vinnslu í Drimlu laxa­vinnslu í Bol­ung­ar­vik.

Þegar fisk­ur­inn fór í sjó í Hvestu vorið 2022 var hann um 150 grömm, en við slátrun er hann um fimm kíló. „Um 94% af fisk­in­um hef­ur farið í fyrsta gæðaflokk en það sem fer í ann­an gæðaflokk er flakað hjá Odda á Pat­reks­firði. Þar verða svo um 95% af ann­ars flokks fisk­in­um að flök­um sem fara í hæsta gæða flokk og því má segja að um 99% af fisk­in­um okk­ar fari í hæsta gæðaflokk.“

Ljós­mynd/​Arctic Fish: Hauk­ur Sig­urðsson

Nýt­ing á fóðri er sögð hafa verið með besta móti og er sér­stak­lega vísað kví þrjú í Hvestu. „Þar fram­leidd­um við stærsta fisk sem farið hef­ur í gegn um slát­ur­húsið okk­ar Drimlu í Bol­ung­ar­vík en hann var að 6,1 kg slægður. Hlut­fall fóðurs á móti fiski var 1,18 sem er frá­bær ár­ang­ur með svona stór­an fisk.“

Þá hafa verð verið há og fást um 1.200 til 1.800 krón­ur á kíló. Í meðal kví er um 450 tonn og því get­ur afla­verðmætið úr einni slíkri verið um 600 millj­ón­ir króna. Vak­in er at­hygli á því að verð á lax sveifl­ast mikið eft­ir árs­tíma og eru verð í hæstu hæðum á þess­um árs­tíma.

Ljós­mynd/​Arctic Fish: Hauk­ur Sig­urðsson
Ljós­mynd/​Arctic Fish: Hauk­ur Sig­urðsson
mbl.is