Heimilt að gera hlé og geyma veiðidaga

Grásleppusjómönnum er heimilt að gera hlé og geyma veiðidaga fram …
Grásleppusjómönnum er heimilt að gera hlé og geyma veiðidaga fram yfir 20. mars. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Grá­sleppu­bát­ar sem hefja veiðar á tíma­bil­inu 1. til 20. mars mega gera hlé á veiðum og geyma veiðidaga sína þar til hefðbundið veiðitíma­bil tek­ur við eft­ir 20. mars. Hefjast þá sam­felld­ir veiðidag­ar að frá­dregn­um þeim dög­um sem þegar hafa verið notaðir.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu á vef Fiski­stofu.

„Þeir aðilar sem ætla að nýta sér heim­ild­ina til­kynna hléið ásamt staðfest­ingu á að öll net hafi verið dreg­in upp,“ seg­ir í til­kynn­ingu stofn­un­ar­inn­ar.

Í lok fe­brú­ar var til­kynnt um að ný reglu­gerð hefði verið sett um grá­sleppu­veiðar og að veiðitíma­bil­inu yrði flýtt frá 20. mars til 1. mars. Er veiði á þessu tíma­bili háð ýms­um nýj­um regl­um um til­hög­un veiða og fel­ur reglu­gerðin í sér m.a. fyrr­nefnda heim­ild til að gera hlé á veiðum.

mbl.is